- Advertisement -

Heilbrigðiskerfið er opinber þjónusta

„Þannig hafa stjórnmálamenn gengið þvert gegn vilja þjóðarinnar í málaflokki sem almenningur telur einn af þeim mikilvægustu fyrir þjóðina.“

„Aðalfundur Sameykis mótmælir harðlega fjársveltistefnu ríkisstjórnar Íslands í heilbrigðiskerfinu þar sem tilgangurinn er augljós – að einkavæða þjónustuna.“ segir í samþykkt frá aðalfundi Sameykis.

„Ríkisstjórnin hefur lengi fjársvelt heilbrigðiskerfið og einungis einstök frammistaða starfsfólks í opinberri þjónustu sem starfar í heilbrigðiskerfinu og hefur lagt á sig ómælt og ómælanlegt erfiði heldur því gangandi við þröngan kost. Þó almenningur vilji að hið opinbera eigi að sjá um rekstur heilbrigðiskerfisins hefur einkavæðing í heilbrigðisþjónustunni aukist á síðustu árum,“ segir í ályktuninni.

„Þannig hafa stjórnmálamenn gengið þvert gegn vilja þjóðarinnar í málaflokki sem almenningur telur einn af þeim mikilvægustu fyrir þjóðina. Það er þekkt aðferð að svelta stofnanir og tiltekna málaflokka svo megi einkavæða þá.

Talsmenn einkavæðingar í heilbrigðiskerfinu tala gjarnan um að ekki sé verið að einkavæða eitt né neitt, aðeins koma þjónustunni eða tilteknum þáttum hennar í einkarekstur. Þetta er hreinn útúrsnúningur sem virðist hafa þann eina tilgang að nota fallegra orð en einkavæðingu yfir einkavæðingarstefnu ríkisstjórnarinnar. Aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu er ekkert annað en einkavæðing á þjónustu sem veitt er almenningi og á að greiðast með almannafé. Slíkum einkarekstri er náð fram með opinberu stjórntæki í formi þjónustusamninga sem almenningur greiðir fyrir og gefur sjálfstæðum aðilum tækifæri til að taka fé út úr rekstri heilbrigðisþjónustunnar.

Aðalfundur Sameykis leggst alfarið gegn einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar og gjaldtöku sem byggir einungis á hagnaðarsjónarmiðum og krefst þess að almenningur fái þá þjónustu sem þörf er á án þess að þurfa að greiða þriðja aðila sérstaklega fyrir úr eigin vasa.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: