Innlenda valdastéttin óttaðist ekkert meira en að missa tökin á alþýðunni – sem hún átti með húð og hári.
Kristinn Hrafnsson skrifaði:
„Hægt og hljótt fjarar lífið úr íslenskri blaðamennsku. Í gær urðu kaflaskil með endalokum sjónvarpsfrétta Sýnar/Stöðvar 2. Það voru einnig uppsagnir á RÚV en ég spái því að hatursfullar ofsóknir gegn þeirri stofnun muni nú vaxa. Skoðanamyndun verður smám saman nær alfarið háð innspýtingu fjármagns til áróðurs á samfélagsmiðlum og annars staðar.
Öll sjónarmið sem ekki hampa ægivaldi fjármagnsins hafa smám saman verið útilokuð eða jaðarsett sem vinstri ógn, jafnvel hryðjuverk. Trumpstjórnin hefur formlega skilgreint gagnrýni á sig sem „öfga-vinstri hryðjuverk“.
Þetta eru raddir
frá póitískum
flokkum…
Á meðan allir á Íslandi voru uppteknir við annað í liðinni viku var gripið til fyrstu aðgerða utan eigin landamæra á grunni þessarar skilgreiningar Trumpstjórnarinnar, meðal annars efnagagsegar refsiaðgerðir og hryðjuverkaskilgreining á Palestine Action í Bretlandi, nú þegar aðgerðir gegn PA þar í landi eru að verða sífellt kinnroðablendnari efir því sem fleiri ellilífeyrisþegar eru handteknir fyrir að halda á skiltum. Þá var á refsilistanum Masar Badil, samtök sem berjast gegn öfgasíonismanum í samhengi við þjóðarmorðið á Gasa og aðra glæpi. Áhugaverðast var að setja á listan A/I collective, ítölsk samtök tæknifólks í sjálfboðavinnu sem hefur boðið upp á leiðir til öruggra samskipta á internetinu fyrir blaðamenn og aðgerðarsinna. Það kallast nú stuðningur við hryðjuverk.
Hér heima var hægrið með aðstoð tryggra sósíalista að sigra í þjóðaratkvæðagreiðslu. Innilegar hamingjuóskir hafa verið að detta inn frá öfga hægrinu í Evrópu á meðan aðrir pólitískir leiðtogar segja fátt og lítið. Þetta hlýtur að ylja Nei-mönnum um hjartaræturnar.
Þetta eru raddir frá póitískum flokkum sem ísraelistar hafa verið að halla sér að í ríkara mæli frá þvi í fyrra þegar stuðningurinn við þjóðarmorð og stríðsglæpi byrjaði að þverra hratt meðal almennings. Það skiptir Ísraela litlu máli þó að flokkar eins og FPÖ í Austurríki hafi verið stofnaður af einkennisklæddum Nasistum. Það má mynda við hann bandalag. AfD í Þýskalandi er enn ekki formlega í þessu nýja allíansi með Ísraelistum en líklgast gerist það áður en langt um líður. Líkur sækir líkan og pólitíkin býr til skrítna bólfélaga, hér heima sem á alþjóðasviðinu.
Það stefnir allt í óskorað fullveldi fjármagnsins á Íslandi sem mun gera allt til að hefta frelsi almennings með einangrun og höftum á upplýsingamiðlun frá öllum nema þeim sem hafa endalaust fjármagn í áróður.
Það varð að
hindra að
alþýðan…
Í alþingisbókum 1663 er rætt um nauðsyn þess að skattleggja almenning og kaupa varðskip til að verjast erlendri ásælni og halda ræningjum frá. Ein helsta röksemdin var að sæjust erlend skip við strendur gæti píndur almúginn freistast til að láta ræna sér mótþróalaust því lífið var svo ömurlegt að það gæti ekki verið annað en skárra í þrælaböndum ytra. Það varð að hindra að alþýðan „…mætti falla í þá freistni að vera til friðs að vera hertekinn, upp á von og ævintýr“.
Innlenda valdastéttin óttaðist ekkert meira en að missa tökin á alþýðunni – sem hún átti með húð og hári.
Því meira sem breytist, því meira er allt við það sama.“