Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Sjálfstæðisflokkurinn
veit nefnilega…
Vissulega má nefna ýmsa sérhagsmuni, á borð við að formaður flokksins er betur varinn af 30% tollamúr en konungar voru af miðaldaköstulum, eða að efnafólk lifi áfram gordjöss lífi á okurvöxtum sem fá jafnvel okurhákarla til að roðna. Einnig hagnast þeir sem græða á daginn og grilla á kvöldin óskaplega á hárri verðbólgu þegar laun verkafólks skreppa saman.
En önnur skýring liggur líka nærri andstöðu Sjálfstæðisflokksins við áframhaldandi aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. Sjálfstæðisflokkurinn veit nefnilega að evran er mynt sem ekki væri auðvelt að kenna um allt mögulegt. Hún kallar fram óþægilegar spurningar um hagstjórnina og er ekki tilbúin að hleypa öllu upp í verðbólgubál. Flokkurinn veit að hann er ekki stjórntækur verði evran tekin upp hér á landi, enda er evran mynt sem keppir í þungavigt, nýtur trúverðugleika og stuðlar að stöðugleika og heilbrigðri skynsemi.
Frá árinu 1981 hefur Sjálfstæðisflokkurinn setið við völd stóran hluta tímans. Árangurinn er verðbólga sem hefur að jafnaði numið 10% á ári. Ein höfuðástæða þessa lélega árangurs er ístöðuleysi flokksins gagnvart gróðafíkn, ábyrgðarleysi og sérhagsmunum. Slíkt líðst ekki þar sem evran er gjaldmiðill.
Sérhyggjan og
valdasýkin
er svo taumlaus…
Eðli flokksins sést núna í borgarstjórn þegar hagræðing heitir að segja skúringakonum og skólaliðum upp svo hægt sé að einkavæða störfin til fyrirtækja sem eru í beinni áskrift við Virk vegna vinnuslita kvenna.
Sérhyggjan og valdasýkin er svo taumlaus í þessum flokki að öll samfélagsleg ábyrgð hverfur eins og dögg fyrir sólu. Þá skiptir máli að vera með rétta manninn í talningarteyminu í Borgarnesi eins og forðum daga. Sá gekk um með 12 útfyllta atkvæðaseðla í brjóstvasanum og laumaði þeim í rétta atkvæðabunka til að breyta niðurstöðum Alþingiskosninga á landsvísu.
Ætli svona útsendari á vegum Sjálfstæðisflokksins leynist einhvers staðar í kosningunum næsta laugardag?
Sjálfstæðisflokkurinn messar núna yfir almenningi með hræðsluáróðri og ósannindum. Vonast flokkurinn til að geta hrætt alþýðuna til hlýðni og kjósa með sérhagsmunum og óstjórn elítunnar í landinu.
Ef einhver á betri brandara en íslensk stjórnmál, þá má hinn sami gefa sig fram við Spaugstofuna.