- Advertisement -

Hörð átök um eitthvað sem ekki verður?

Þorsteinn Sæmundsson:

„Ég hef margoft lýst því yfir að ég vilji leiða þennan lista áfram.“

Þorsteinn Sæmundsson var ekki á fylleríinu á Klaustursbarnum. Þorsteinn er yfirburðaræðumaður. Þorsteinn hefur barist af hörku í þinginu til að knýja fram svör um hvað varð um þau þúsunda íbúða sem fólk var hrakið úr eftir hrunið. Þorsteinn vill áfram leiða lista Miðflokksins í Reykjavík suður. Það vill æðsta stjórn flokksins ekki. Því eru átök í Miðflokknum. Sem kannski eru átök um ekki neitt þar sem staða Miðflokksins er slæm þegar aðeins tveir mánuðir eru til kosninga og með öllu óvíst að flokkurinn fái þingmenn kjörna í Reykjavík.

Uppstillingarnefnd stillti upp lista. Nefndin hafnaði Þorsteini fullkomlega. Setti hann ekki á framboðslistann. „Ég hef margoft lýst því yfir að ég vilji leiða þennan lista áfram,“ sagði Þorsteinn í viðtali við Fréttablaðið.

Heimildir Fréttablaðsins herma að stuðningsmenn og fjölskylda Þorsteins hafi fjölmennt á félagsfundinn til að fella listann. Féllu atkvæði á fundinum þannig að fjórtán vildu styðja staðfesta listann, en þrjátíu greiddu atkvæði gegn honum. Því loga átök innan flokksins.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Vigdís Hauksdóttir og Gunnar Bragi Sveinsson buðu sig bæði fram til varaformanns. Af ótta við að Vigdís kynni að hafa betur var afráðið að afleggja embætti varaformanns. Furðuleg redding.

Síðast þegar flokkurinn hristist stafnanna á milli var þegar Vigdís Hauksdóttir sóttist eftir að verða varaformaður Miðflokksins. Þá var vandanum sópað undir teppið með því að afleggja varaformansembættið. Furðuleg redding. Sem þó bjó til logn í einhvern tíma.

Fjólu Hrund Björnsdóttur, framkvæmdastjóra þingflokksins, var stillt upp í fyrsta sæti framboðslistans. Í það sæti þar sem Þorsteinn Sæmundsson er fyrir.

Í samtali við Fréttablaðið segir Fjóla Hrund: „Það sem gerist er að uppstillingarnefnd kemur fram með ákveðinn lista. Það var skýr áhugi meðal flokksmanna að það yrðu breytingar,“ segir hún og bætir við: „Þarna var kynntur nýr, öflugur listi, en sitjandi oddviti fór þá leið að fella listann, sem er afar sjaldgæft.“

Heimildir Fréttablaðsins herma að allt leiki á reiðiskjálfi innan flokksins og flokksmenn séu ósáttir við framgöngu Þorsteins. Fjóla er hins vegar mjög vinsæl í flokknum og af mörgum sem Fréttablaðið ræddi við, talin einn allra öflugasti liðsmaður flokksins. Þá herma heimildir einnig að mjög hafi verið þrýst á hana að þiggja oddvitasæti og því mikið áfall að hún fái þessa útreið á félagsfundi.“

Er þetta dæmigerð deila um keisarans skegg? Víst er að margt þarf að breytast ef Miðflokknum á að takast að verja þingsæti sín í Reykjavík.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: