- Advertisement -

„Hugur okkar er hjá Grindvíkingum“

„Þetta er ekki pólitískt eða flokkspólitískt mál að því leytinu að það kemur ekkert annað til greina en að standa með Grindvíkingum. Við erum þannig samfélag og samtryggingin er það sem gerir okkur að sterku samfélagi og veitir líka fólki von þegar svona áfall ríður yfir. Við vonum auðvitað það besta en hvernig sem málum vindur fram mun Samfylkingin styðja stjórnvöld í því verkefni sem nú er fyrir höndum, að virkja samtrygginguna til stuðnings Grindvíkingum og öðrum sem kunna að verða fyrir tjóni af völdum náttúruvár á Reykjanesskaga,“ sagði Kristrún Frostadóttir á Alþingi fyrir skömmu.

„Þetta lagafrumvarp um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga er auðvitað aðeins fyrsta viðbragð á Alþingi við þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin. Landsmenn munu líta til þess að við tryggjum lífsviðurværi fólks sem hefur þurft að flýja heimili sín. Andlega og félagslega áfallið er nógu alvarlegt þó að fjárhagslegar áhyggjur bætist ekki ofan á. Vissulega eigum við Atvinnuleysistryggingasjóð, sem hér hefur verið komið inn á, en við vitum það vel að grunnbætur eru ekki háar.

Við vitum líka að hámark tekjutengingar atvinnuleysistrygginga er heldur ekki hátt og það varir aðeins í þrjá mánuði. Það er heldur ekki svo að þó að atvinnuleysi mælist lágt í landinu þá geti þúsundir manna gengið í hvaða störf sem er í þessari stöðu eins og ekkert sé. Það reynir verulega á samtrygginguna okkar á tímum sem þessum. Við fáum hraðsoðna innsýn inn í hvernig sameiginlegu kerfin okkar raunverulega standa. Almannavarnir hafa sýnt styrk sinn á síðustu árum og núna á síðustu dögum sömuleiðis. 

Ég treysti því, virðulegi forseti, að það verði ráðist í þessa vinnu nú á næstu dögum og vikum til að tryggja virðingarverða afkomutryggingu fyrir Grindvíkinga. Sú vinna mun eflaust vekja okkur til umhugsunar um hvar treysta megi sameiginlegu kerfin okkar fram á veginn fyrir fleiri sem þurfa nú þegar að reiða sig á þau. 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Svo að ég segi það bara aftur hér að lokum: Hugur okkar er hjá Grindvíkingum á þessum erfiðu tímum. Samstaða okkar með íbúum Grindavíkur er algjör. Það verður þingheimur að sýna í verki á næstu dögum og vikum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: