- Advertisement -

Hústökufólk við Leifsstöð?

„Þessir aðilar hafa farið þannig fram að það er til stórskaða, t.d. fyrir íslenska ferðaþjónustu, því að þeir hafa orðið uppvísir að því að reyna og takast að svindla herfilega á farþegum sem hingað rata.“

ÞORSTEINN SÆMUNDSSON.

„Ég hef áður úr þessum ræðustól fjallað nokkuð um fyrirbæri sem kallað er opinbert hlutafélag eða ohf. Við höfum nokkur dapurleg dæmi um slík félög. Ég gæti nefnt RÚV, Póstinn og ekki síst Isavia,“ sagði Þirsteinn Sæmundsson Miðflokki fyrr í dag.

„Það er sammerkt með þessum félögum öllum að það virðist ekki nokkur maður bera ábyrgð á rekstri þeirra, hvað þá heldur þegar koma upp einhver álitamál. Þá þvo menn hendur sínar sem ákafast. Það sem hefur t.d. á daga Isavia drifið nú undanfarna mánuði og misseri er að þrengt hefur verið verulega að starfsemi leigubílstjóra á flugvellinum. Á meðan hafa hópar manna vaðið uppi sem sumir hverjir hafa fengið gefins réttindi og aðrir sem hafa engin réttindi á nokkurn hátt. Þessir aðilar hafa farið þannig fram að það er til stórskaða, t.d. fyrir íslenska ferðaþjónustu, því að þeir hafa orðið uppvísir að því að reyna og takast að svindla herfilega á farþegum sem hingað rata. Meðan á þessu stendur yppa allir í kringum þessa starfsemi öxlum og hafast ekki að,“ sagði Þorsteinn og bætti svo við:

„En nú er komið nýtt mál upp á sjóndeildarhringinn. Hópur hústökufólks hefur lagt undir sig kaffiaðstöðu, sameiginlega kaffiaðstöðu þarna suður frá, og breytt í bænahús og meinað öðrum inngöngu inn í þetta hús, sem er náttúrlega ríkiseign. Meðan á þessu fer fram er enn yppt öxlum og enginn kannast við að þurfa að taka á málinu, hvorki stjórn fyrirtækisins og þá síður hæstv. fjármálaráðherra. En þessu verður að linna, frú forseti. Þetta gengur ekki.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: