- Advertisement -

Hvað verður um Þorgerði Katrínu?

Jón Viðar Jónsson skrifar:

„Eitt af því sem hver einstaklingur þarf að læra (með illu ef ekki góðu) er að hann er ekki ómissandi. Þetta á vitaskuld einkum við um þá sem setjast á valdastóla af einhverju tagi, helst þá sem eru bundnir trúnaði við almenning. En óbrigðul reynsla sýnir að völd eru æði oft heiftarlega ávananabindandi – og það er ekki bara stjórnmálasagan sem staðfestir það, heldur líka leikhússagan (einnig sú íslenska eins og ég hef dregið fram dæmi um bæði í gagnrýni og fræðaskrifum). Þegar menn eru komnir á slíka pósta getur verið óhemju freistandi að festast í þeim og hanga á þeim eins og hundur á roði,“ skrifar Jón Viðar Jónsson á Faebook.

„Hér tala ég af eigin reynslu. Ég hef tvívegis um dagana gegnt föstu stjórnunarstarfi, í bæði skiptin í kringum áratug, og ég veit að ég hefði í hvorugt skiptið mátt sitja deginum lengur. Á heildina litið tel ég mig hafa staðið mig frekar vel eða amk viðunandi vel í umræddum störfum, þó vitaskuld hafi allt ekki gengið upp – en þannig er lífið nú bara. Í bæði skiptin tók ég hins vegar fullkomlega meðvitaða ákvörðun um að hafa ekki frekari afskipti af því sem lokið var, heldur leyfa óþreyttum kröftum að spreyta sig – og treysta þeim til að gera það. Það sem meira var – ég stóð við þá ákvörðun (þið verðið að afsaka sjálfshólið enda er ég kominn á löggiltan raupaldur). Ég hafði séð of mörg dæmi um hið gagnstæða þar sem hinn fráfarandi vildi endilega fá að hreiðra notalega um sig í aftursætinu og hafa vit fyrir bílstjóranum.“

Hér má lesa alla grein JVJ:

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: