Verst þótti mér þó að upplifa þórðargleðina á samskiptamiðlunum um þessar uppsagnir.
Regína Ástvaldsdóttir.
Regína Ástvaldsdóttir skrifaði:
„Í síðustu viku bárust þau tíðindi úr Ráðhúsinu að 18 manns hafi verið sagt upp störfum. Þar á meðal öllu samskiptateyminu sem Eva Bergþóra stýrði af miklum metnaði og öllum upplýsingafulltrúunum.
Í þeim hópi var Fríða, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir sem ég var svo heppin að fá til starfa á velferðarsviði þegar ég var stjórnandi þar. Fríða var einstök samstarfskona, setti sig inn í flókin og viðkvæm mál og fjallaði um starfsemi sviðsins og einstaklinga af mikilli fagmennsku og næmni. Virðing fyrir viðfangsefninu var alltaf leiðarljósið og aldrei gefinn afsláttur af hlutleysi þess sem er fyrst og fremst að miðla réttum upplýsingum til borgarbúa.
Megnið af upplýsingafulltrúunum voru að vinna úti á sviðunum, ekki sérstaklega fyrir borgarstjóra.
Það snerti mig illa að heyra að hún og annað fagfólk sem sinnti sínum málaflokkum af kostgæfni hefði verið látið fara, án nokkurra viðvarana. Verst þótti mér þó að upplifa þórðargleðina á samskiptamiðlunum um þessar uppsagnir.
Ég skrifa um Fríðu vegna þess að ég þekki hennar vinnubrögð út í gegn. Aðrir stjórnendur hafa örugglega sömu sögu að segja um ,,sitt“ fólk sem þeir treystu og þekktu til. Þessi fjöldi upplýsingafulltrúa sem færðust af fagsviðunum fyrir tveimur árum síðan og inn í ráðhúsið voru fyrst og fremst að vinna fyrir sviðin.
Á velferðarsviði fólst vinna upplýsingafulltrúa meðal annars í ársskýrslugerð, innri og ytri miðlun til skjólstæðinga og starfsmanna og fréttir til borgarbúa. Ef við berum velferðarsvið saman við fyrirtæki þá velti ég því fyrir mér hvaða starfsemi með á annað hundrað starfseiningar, 3.500 starfsmenn og veltu upp á tæplega 50 milljarða hefur efni á því að vera ekki með upplýsingafulltrúa?
Og til að árétta, það er mikilvægt að velta hverri krónu í opinberum rekstri og stundum þarf að grípa til sársaukafullra aðgerða. En umræðan um þessar uppsagnir hafa verið á þá lund að það er nauðsynlegt að draga fram í dagsljósið að megnið af upplýsingafulltrúunum voru að vinna úti á sviðunum, ekki sérstaklega fyrir borgarstjóra og það eru þvílík verðmæti falin í því að hafa metnaðarfullt fagfólk í miðlun upplýsinga til starfsfólks, notenda þjónustu og amennings.“
Þess ber að geta að í hópi þess fólks sem var sagt upp, er dóttir ritstjóra Miðjunnar.