- Advertisement -

Inga spáir frostavetri

„Það er ljóst að það stefnir í frostavetur í efnahagslegu tilliti og fólk óttast auðvitað um framtíðina miðað við þá stöðu sem við sjáum núna nú er því mikilvægt að meiri byrgðar verði ekki lagðar á þá sem lítið hafa,“ sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í síðdegisþætti Útvarps Sögu í gær.

„Hér blása forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins í herlúðrana og tala niður forsvarsmenn verkalýðshreyfinga, í stað þess að reyna að gera þetta af einhverri skynsemi og ræða við fólkið,“ sagði Inga.

„Þá segir Inga uppsagnarstyrki til fyrirtækja heldur ekki bæta ástandið í samfélaginu,“ segir á utvarpsaga.is

„Það að veita fyrirtækjum styrki til þess hreinlega að reka fólk er alls ekki það sem þarf núna, það þarf einmitt að vernda störfin með öllum ráðum sem fyrirfinnast,“ sagði Inga.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hér er hægt að hlusta á viðtalið.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: