- Advertisement -

Ísland sat hjá

Kristinn Hrafnsson:

Það er dagrenning á Gaza en engar fréttir hafa enn borist um mannfallið í nótt aðeins stakar ljósmyndir og einstök orð „hreinn hryllingur“, „slátrun“, „þjóðarmorð“.

Ísland sat hjá í gærkvöld í atkvæðagreiðslu um mannúðarvopnahlé á Gaza á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna…

Í kjölfarið slökkti Ísrael á öllum fjarskiptum og ákvað að fremja verstu voðverkin í myrkri og sambandsleysi.

Ísland sat hjá.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eftir linnulausar sprengjuárásir þrjár vikur þar sem 7000 hefur verið slátrað, meira en 3000 börnum, var ákveðið að bæta í með mestu sprengjuaðgerð til þessa í nótt.

Ísland sat hjá.

Það er dagrenning á Gaza en engar fréttir hafa enn borist um mannfallið í nótt aðeins stakar ljósmyndir og einstök orð „hreinn hryllingur“, „slátrun“, „þjóðarmorð“.

Þetta er það sem Íslendingar fá með morgunkaffinu.

Tillagan í gærkvöld sem ekki var einu sinni bindandi gekk út á að Ísrael stöðvaði þessa linnulausu slátrun á almennum borgurum. Hún var samþykkt af yfirgnæfandi meirihluta þjóða.

Alþjóðasamfélagið talaði skýrri röddu, já: 120, nei: 14

Ísland sat hjá.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: