Á fundi Nato var Kristrún spurð út í ummæli Trump við upphaf fundarins þar sem hann ítrekaði á ný að Grænland ætti að tilheyra Bandaríkjunum. Hann sagði þá að Grænland hjálpi ekki Danmörku og að Danmörk verji ekki nægilegum fjármunum í að hjálpa Grænlandi en það væri mikilvægt fyrir Bandaríkin. „Og það er umkringt kínverskum skipum og rússneskum skipum og það mun ekki gerast,“ sagði Trump í gær.
Kristrún sagði að íslensk stjórnvöld hefðu verið mjög skýr í sinni afstöðu þegar kemur að þessu. „Þá á ég við að Grænland tilheyrir Grænlendingum. Þeir vilja ekki vera hluti af Bandaríkjunum. Þeir hafa talað mjög skýrt í þeim efnum. Sömu skilaboð hafa komið frá Mette Fredriksen,“ segir Kristrún.
(Textinn er meðal annars sóttur á Vísi.)