- Advertisement -

Löggjöfin um almannatryggingar er óréttlát og tekjuskerðingarnar ósanngjarnar

Hrafn Magnússon skrifar:

„Afskaplega finnst mér miður þegar lærðir hagfræðingar kalla Tryggingastofnun ríkisins „tekjujöfnunartæki“. Almannatryggingar eru ein af grunnstoðum velferðarkerfisins, líkt og heilbrigðiskerfið og menntakerfið.

Löggjöfin um almannatryggingar hér á landi er hins vegar óréttlát og tekjuskerðingarnar ósanngjarnar. Á þessar staðreyndir hef ég bent á mörgum sinnum og LEB Landssamtök eldri borgara ályktað um nauðsyn þess að heildarendurskoðun á lögum um almannatryggingar fari fram.

Margir virðast stefna leynt og ljóst að því að gera Tryggingastofnun ríkisins að eins konar fátæktarstofnun og tala um „að ekki megi opna alla krana“ í fjárveitingum til þessa málaflokks, eins og einhverjum detti það til hugar.

Með upplýsingaóreiðu og hálf kveðnum vísum er í þessum málum reynt að rugla fólk í ríminu, en það má ekki takast. Almannatryggingar mega ekki vera fátæktarstofnun heldur nauðsynleg stoð í velferðarkerfinu. Stefnum þangað.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: