
Þröstur Ólafsson hagfræðingur skrifar:
Tifinningahlaðin slagorð eru vopnin sem leiða til niðurstöðu í miklilvægustu málum. Mörgum finnst þetta í lagi því það þekkir ekki lengur muninn á réttu og röngu – sönnu og uppspuna.
„Það þykir ekki hafið yfir allan vafa, að stilla upp fullyrðingum og rembast síðan við að renna stoðum undir hana. Því miður er það svo að obbinn af þeim sem svifta vilja okkur kosningarétti og koma vilja í veg fyrir sanningaviðræður við ESB um aðild, réttlæta andstöðu sína með fullyrðingum einum saman. Satt best að segja er þeim vorkunn, því enginn hefur tekið að sér að upplýsa um uppbyggingu og strúktúr bandalagsins; atkvæða vægi : hvaða mál heyra undir sameiginlega ákvörðunartöku og hver ekki á móti því að glutra niður frelsi og lýðræði ‚ o.s.frv. Þetta hefði ríkisstjórnin átt að gera tímanlega, meðan hún hafði enn dagskrárvald á málinu. Umræðu lágkúran hér er svo langt niðri í yðrum mannlegra vitsmuna, að maður skammast sín fyrir þekkingarleysið, jafnvel hjá háskólagengnu fólki.
Af málflutningi að halda er augljóst að bæði er skortur á efnislegri þekkingu – en ekki síður á grundvallarundirstöðu lýðræðislegrar skoðanaskipta. Margir þátttakendur í umræðunni gera sér enga greinarmuni á fullyrðingu og röksemdafærslu. Lýðræðið grundvallast á skynsemi og rökum. Það skreppur saman og hverfur að lokum ef allir ruglast í ríminu (upplýsingaóreiðan). Þá munu tilfinningar einar ráða. Upprís afþvíbara samfélagsgerð. Tifinningahlaðin slagorð eru vopnin sem leiða til niðurstöðu í miklilvægustu málum. Mörgum finnst þetta í lagi því það þekkir ekki lengur muninn á réttu og röngu – sönnu og uppspuna.
Við skulum gera okkur grein fyrir því að heimssýnin er á hröðu breytingarskeiði. Nei í þjóðaratkvæði þýðir langt nei-tímabil.
Þótt Bretum blæði fyrir pólitíska skammsýni sína, er erfitt fyrir hvern sem er að endurtaka þjóðaratkvæði um sama málð, þótt vindar blási nú á annan veg. Andstæðingar ESB aðildar beittu fyrir sig slagorðum sem slógu í gegn. Yfirfull of lofurðum (fullyrðingum) um þægilegra og betra líf en umfram allt styrkingu fullveldis heimsveldisins, sem þeir sögðust hafa afhent skriffinnunum í Brussel. Nú er fullveldi þeirra mun minna. Þeir hafa engin áhrif á ganga mála á meginlandinu lengur. Við gætum þurft að banka á dyrnar í Brussel innan ekki allt of langs tíma vegna enn breyttari tíma. Hver veit hvað þá bíður okkar?“