
Gunnar Smári skrifaði:
Við lifum tíma þar sem fjöldi manna gengst upp í því að vera andstyggilegir. Þetta er eins konar hatursskreyting, menn sem sækjast eftir skjalli frá öðrum hatursfullum á hatursfullum tímum leiddum af Donald Trump og þeim sem taka hann til fyrirmyndar. Megnið af þessu ömurlega röfli er innantóm heimska, en eftir því sem holskeflan vex aukast líkur á einhverjum harmleik. Það stjórnmálafólk sem ýtir undir þetta ástand með linnulausum ásökunum um að þau sem ekki eru sammála þeim séu óvinir ríkisins, landráðafólk, keypt fólk eða sturlað (og önnur slík afmennskun) ætti að skammast sín og halda kjafti. Ísland yrði betra á eftir.