Vilhjálmur Árnason skrifaði:
„Það er mikil gæfa fyrir þjóð að eiga góða stjórnmálamenn. Viðtalið við Kristrúnu Frostadóttur í hlaðvarpinu „The Rest is Politics“ sýnir hæfileika hennar vel. Að mínu mati birtist þetta skýrast í því hvernig hún nálgast stjórnmál, hversu málefnaleg og stælalaus hún er. Mér fannst sérstaklega ánægjulegt að heyra að hún hygðist ferðast um landið í ágúst og ræða við fólk í aðdraganda þjóðaratvæðagreiðslunnar. Það er afar mikilvægt að stjórnmálamenn hafi trú á samtali, hlusti á ólík sjónarmið og iðki upplýsta umræðu. Það eru góð stjórnmál.“
(Myndina tók Kristinn Ingvarsson á ráðstefnu Alþjóðamástofnunar í júní s.l.)