Atli Þór Fanndal skrifaði:
„Í fréttum er þetta helst. Fræðimenn á Íslandi sem er hluti af vísindafjarmögnunarkerfi Evropusambandsins sækja fé í sjóði sem Ísland rekur sérstaka stofnun til að hvetja fræðimenn til að sækja í. Smjöttum svolítið því og látum að því liggja að þetta sé leynilegt fé líkt og að taka við greiðslum frá útgerðinni í leyni. Þetta sé allt voðalega dúpíus og já látum bara allskonar liggja á milli hluta. Það er eins með bæði Hannes Hólmstein og Morgunblaðið að alltof mikill tími fer í að tuða yfir skoðunum beggja en of lítill í að fara yfir hvað þau kunna ekki nein vinnubrögð. HHG er fræðimannalíki sem kann ekki vísindaleg vinnubrögð og Mogginn er fréttamiðlalíki sem viljandi grefur undan staðreyndum. Það er allt í lagi að vera með asnalegar skoðanir en fréttamennska á að byggja á staðreyndum og skýrleika ekki bara því að láta hluti liggja. Jean Monnet eru styrkir til háskóla ekki peningjagjöf til einstaklinga.“