- Advertisement -

„Mogginn mun halda bullinu áfram“

Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur skrifar:

Það eru engin fordæmi fyrir höfnun þjóðþinga á fyrirliggjandi aðildarsamningi.

„Mogginn reynir enn að gera sér mat úr þessu máli með það að markmiði að gera Þorgerði Katrínu – utanríkisráðherra Íslands – ótrúverðuga! Sú aðför mistekst. Í svari hollenska stjórnarráðsins kemur auðvitað fram að það sé ekki í þeirra verkahring að gera aðildarsamning við Ísland. Hollenska þingið hefur ekkert með aðildarviðræður að gera. Kemur ekki nálægt þeim.

Hollenska þingið þarf hins vegar að staðfesta aðildarsamning þegar og ef hann verður að veruleika. Fullyrða má að þingið hið hollenska – sem og önnur þjóðþing aðildarríkja ESB – mun staðfesta samning ef á reynir. Það eru engin fordæmi fyrir höfnun þjóðþinga á fyrirliggjandi aðildarsamningi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það eru engar líkur á að aðildarsamningur Íslands verði sá fyrsti sem slík örlög fengi út af nokkrum þorskum. Bara akkúrat engar líkur. Hollendingar eru uppteknir við að rækta túlipana og gerja osta. Ykkur er alveg óhætt að trúa því að þeim er skítsama um þessa þorsktitti sem við Íslendingar drögum á land. En auðvitað er að sama skapi fullvíst að Mogginn mun halda bullinu áfram…. Áfram Ísland og við segjum JÁ þann 29.08 “

Úlfar er að auki bæði menntaður vélstjóri og skipstjóri.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: