- Advertisement -

Hvað varð um slagorðið ræsum vélarnar?

Alþingi:

Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins: „Margt áhugavert má lesa úr nýframkomnu fjárlagafrumvarpi og þar gefst einnig tækifæri til að kanna sannleiksgildi pólitískrar orðræðu frá síðasta ári. Hver man ekki eftir slagorðum ríkisstjórnarinnar eins og „ræsum vélarnar“ og stóryrtum yfirlýsingum um að nú verði aftur farið að bora göng? Ef við horfum til útgjalda ríkisins til samgangna á þessu kjörtímabili hlýtur sú spurning að vakna hvort það hafi ekki verið ætlunin að láta vélarnar ganga a.m.k. um einhverja hríð, eða eru þær strax orðnar olíulausar?“

Ólafur sagði raunlækkun ti samgangna vera 6,3% sem væri þvert á það sem lofaði hafði verið. „Og hvernig rímar það við yfirlýsingar hæstvirts ráðherra um verulega aukið fjármagn til samgangna?“

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra þakkaði Ólafi fyrirspurnina og sagði svo:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Við erum að stórauka framlög til samgöngumála og vegamála frá fyrri ríkisstjórn. Varðandi það sem fyrri ríkisstjórn var að gera í vegamálum þá áætlaði hún í kringum 13 milljarða í viðhald. Við erum í ár að fara upp í 17,5 milljarða. Í fyrra settum við auka 3 milljarða. Næsta ár ætlum við að fara í 17,6 milljarða, við ætluðum að fara hærra en lendum í 17,6 vegna aðhalds.“

Í lok svars síns sagði ráðherrann:

„Varðandi fjárlagagerðina núna í ár er það markmið ríkisstjórnarinnar að ná niður verðbólgu í landinu og ná niður vaxtastigi. Út á það ganga núverandi fjárlög. Við erum samt að bæta í varðandi samgöngur.“

„Varðandi fjárlagagerðina núna í ár er það markmið ríkisstjórnarinnar að ná niður verðbólgu í landinu og ná niður vaxtastigi. Út á það ganga núverandi fjárlög. Við erum samt að bæta í varðandi samgöngur.“

Hér er seinni innkoma Ólafs Adolfssonar.

Hér er seinni innkoma Eyjólfs Ármannssonar:


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: