- Advertisement -

Munurinn er 4,2 prósent, sami skuldari, nánast sami lánstími, annar gjaldmiðill

Dagur B. Eggertsson á Alþingi:

Dagur tók tik máls um fjárlagafrumvarpið og sagði þá meðal annars:

…rúmir 110
milljarðar…

„Mig langar að staldra aðeins við þessa vaxtabyrði, ekki vegna þess að öll vaxtabyrði ríkisins skýrist af gjaldmiðlinum, svo er það auðvitað ekki, en þetta er dálítið skýrt samanburðardæmi. Íslenska ríkið á óverðtryggt skuldabréf í krónum sem fellur í gjalddaga í janúar 2031. Ávöxtunarkrafa þess á markaði í gær var 7,59%. Í maí á þessu ári gaf sami skuldari, íslenska ríkið, út fimm ára skuldabréf í evrum með nánast sama gjalddaga. Ávöxtunarkrafan í þeirri útgáfu var 3,352%. Munurinn er 4,2%. Sami skuldari, nánast sami lánstími, annar gjaldmiðill. Hver er stærðargráðan? Ef við reiknum heildarskuldir ríkissjóðs samkvæmt frumvarpinu, sem eru 2.646 milljarðar kr. í lok næsta árs, með þessum vaxtamun er munurinn á vaxtabyrðinni rúmir 110 milljarðar, nánar tiltekið 112, milli krónu og evru með sama skuldara og raunverulegum tölum af markaði. Skuldabréfin eru auðvitað með ólíka eiginleika og það er gengisáhætta fyrir okkur núna að taka lán í evrum þannig að við gerum það bara að takmörkuðu leyti, en þetta er stærðargráðan. Þá erum við ekki að tala um hagsmuni heimila eða fyrirtækja af því að hafa aðgang að lánum í evrum. 112 milljarðar eru hagsmunir ríkissjóðs ef ríkið gæti borið skuldir sínar í evrum; það myndi muna um það í fjárlagaumhverfinu. Þessir fjármunir geta ekki á sama tíma farið í heilbrigðisþjónustu, menntun, samgöngur eða í að greiða niður skuldir.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Síðar í ræðunni sagði Dagur:

„Við þurfum í þessari umræðu núna í þinginu og inni í nefndum að spyrja: Hvað fáum við fyrir peningana? Er heilbrigðisþjónustan góð? Fá börnin okkar góða menntun? Eru innviðirnir í lagi? Og hvernig getum við fjármagnað þessa þjónustu á sjálfbæran hátt til lengri tíma? Við þurfum líka að spyrja, og það ræðum við ótrúlega sjaldan: Hvernig deilum við byrðunum? Hvernig tryggjum við raunverulegt eignarhald þjóðarinnar á auðlindum? Hvernig tryggjum við eðlilegan afrakstur af þeim? Eru breiðu bökin að bera í takt við styrk? Eða erum við að setja hlutfallslega þyngri byrðar á þá sem minna hafa á milli handanna?“

Hér má lesa alla ræðu Dags B. Eggertssonar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: