- Advertisement -

Níu flokkar á þingi

Gunnar Smári skrifar:

Með hefðbundinni útdeilingu þingsæta ættu Sósíalistar að fá þrjá menn kjörna út á þessi 5%, alveg eins og Flokkur fólksins. Svo virðist sem Ríkisútvarpið og/eða Gallup noti þarna einhver milliprómill til að skilja á milli flokkanna. En við skulum halda okkur við hefðina.

Samkvæmt þeim tölum sem finna má í fréttinni skiptist þingheimur svona ef þetta yrðu niðurstöður kosninga (innan sviga breyting frá núverandi þingi, þ.e. eftir flokkaflakk fjögurra þingmanna):

Ríkisstjórnin:

  • Sjálfstæðisflokkur: 15 þingmenn (–1)
  • VG: 8 þingmenn (–1)
  • Framsókn: 7 þingmenn (–1)
  • Ríkisstjórnin alls: 30 þingmenn (–3)


Stjórnarandstaða á þingi:

  • Samfylkingin: 8 þingmenn (óbreytt)
  • Píratar: 7 þingmenn (óbreytt)
  • Viðreisn: 6 þingmenn (+2)
  • Miðflokkur: 6 þingmenn (–3)
  • Flokkur fólksins: 3 þingmenn (+1)
  • Stjórnarandstaða á þingi alls: 30 þingmenn (óbreytt)


Stjórnarandstaða utan þings:

  • Sósíalistaflokkurinn: 3 þingmenn (+3)


Aðrir flokkar, þar með Lýðræðislegi frelsisflokkur Guðmundar Franklín og nú Glúms Baldvinsson, mælast samanlagt með 0,4% fylgi í þessari könnun.
Breytingar frá febrúarkönnun Gallup eru þær að Miðflokkurinn braggast en Samfylkingin tapar og hefur ekki mælst með minna fylgi á þessu kjörtímabili. Fylgisbreytingar annarra flokka eru innan skekkjumarka.

Breytingar á kjörtímabilinu öllu eru þessar:


Þessir bæta við sig:

  • Sósíalistaflokkurinn: +5,0 prósentustig
  • Viðreisn: +2,8 prósentustig
  • Píratar: +2,3 prósentustig


Þessir eru innan skekkjumarka:

  • Samfylkingin: +0,6 prósentustig
  • Framsókn: +0,4 prósentustig


Þessir tapa fylgi:

  • Miðflokkurinn: –1,4 prósentustig
  • Flokkur fólksins: –1,9 prósentustig
  • Sjálfstæðisflokkurinn: –2,2 prósentustig
  • VG: –4,6 prósentustig


Það er vonlaust að ætla að finna ríkisstjórn út úr þessu, enda lítill tilgangur í slíku út frá könnun svona langt frá kosningum. Það er meira að segja erfitt að lesa út úr fylgisbreytingunum. Burðarflokkar ríkisstjórnarinnar hafa tapað fylgi en stjórnarandstaðan virðist ekki vera a ná sér á flug. Ef við skoðum tímann frá áramótum hefur ekki annað gerst en að Samfylkingin hefur tapað fylgi en Framsókn styrkst og Sósíalistar braggast. Aðrir flokkar eru svo til með sama fylgi og í árslok.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: