- Advertisement -

Ofbeldi hjá Flokki fólksins á Akureyri

Guðmundur Ingi Kristinsson, alþingismaður og varaformaður Flokks fólksins, skrifar

„Kæru vinir og félagar Flokks fólksins. Mér þykir afar dapurt að ég skuli finna mig knúinn til að setjast niður og senda frá mér slík skilaboð. En eins og mál eru að þróast hjá forystu flokksins okkar á Akureyri get ég ekki annað. Mér hafa ítrekað borist fregnir af því að kvenleiðtogar okkar og sjálfboðaliðar á Akureyri hafi mátt sæta ótrúlega niðrandi og fyrirlitlegri framkomu síðustu mánuði frá ákveðnum trúnaðarmönnum flokksins. Talað er um að sífellt og stöðugt andlegt ofbeldi, hótanir og jafnvel kynferðislegt áreiti sé það sem kvenleiðtogar Flokks fólksins hafa mátt þola.

Sem varaformaður flokksins finn ég mig knúinn til að bregðast við og það strax.

Svo það sé alveg skýrt, þá mun ég óska stjórnarfundar og leggja fyrir stjórn að taka fyrir og ræða alvarlega þessar ásakanir. Ég og við í Flokki fólksins munum aldrei sætta okkur við ofbeldi, einelti, hótanir né kynferðislegt áreiti af nokkru tagi innan okkar raða.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: