- Advertisement -

Okur á sóttvarnarbúnaði varði fangelsisvist

Guðmundur Ingi Kristinsson og Inga Sæland.

„Allt frá upphafi heimsfaraldurs kórónuveiru hafa borist fregnir af því að bæði innan og utan lands hafi verð á sóttvarnavörum, grímum, sótthreinsispritti og fleiru hækkað verulega og að óprúttnir aðilar hafi hamstrað til sín slíkar vörur á fyrri stigum faraldursins í gróðavon. Almennt má gera ráð fyrir því að flestir markaðsaðilar séu samfélagslega meðvitaðir og selji vörur á sanngjörnu verði á hættutímum en þegar freistnivandi sem þessi er fyrri hendi þá þarf löggjöf að veita stjórnvöldum færi á að grípa í taumana. Það yrði með öllu ótækt ef, svo dæmi sé tekið, efnaminna fólk gæti ekki fylgt fyrirmælum stjórnvalda um sóttvarnaaðgerðir vegna þess að sóttvarnabúnaður hefði hækkað verulega í verði á skömmum tíma,“ þetta segir í greinargerð með nýju lagafrumvarpi frá Ingu Sæland og Guðmundi Inga Kristinssyni Flokki fólksins.

„Hver sá sem á hættustundu okrar á neytendum í viðskiptum með nauðsynjavörur, sóttvarnavörur eða hvers konar vöru eða þjónustu sem stuðlar að vernd gegn yfirvofandi hættu, svo sem með því að hækka vöruverð án málefnalegra ástæðna eða vegna aukinnar eftirspurnar, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 3 mánuðum. Lögaðili sem okrar á neytendum með þeim hætti sem greinir í 1. mgr. skal sæta sektum allt að 10 millj. kr.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: