Eftirtektarvert er hversu margir fullorðnir karlar skipa framvarðarsveit NEI-sinna. Oðrið á götunni fjallar meðal annars um þetta. Hér eru tveir kaflar úr greininni. Hér er svo öll greinin.
„Hjörleifur Guttormsson, fyrrum þingmaður og ráðherra Alþýðubandalagsins, er kominn yfir nírætt. Hann hikar ekki við að birta áróðursgreinar sem snúast um að segja öllum kjósendum til þannig að þeir fari sér ekki að voða. Skrif hans einkennast af forsjárhyggju. Hann telur sig vita hvað er ungum og miðaldra kjósendum, sem eiga lífið fram undan, fyrir bestu. Er ekki betra að fólk framtíðarinnar velji sjálft án þess að löngu staðnaður öldungur reyni að segja því fyrir verkum?
Nokkrir fyrrum stjórnmálamenn á níræðisaldri halda einnig að mikil eftirspurn sé eftir ráðgjöf þeirra til Íslendinga framtíðarinnar. Efast má um að kjósendur nenni að hlusta á úrtölur gamalla kommaþingmanna eins og Jóns Bjarnasonar og Ólafs Ragnars Grímssonar sem hafa allan sinn stjórnmálaferil verið á móti öllum breytingum og samskiptum við erlend ríki, allavega vestræn lýðræðisríki. Öfgahægrimaðurinn Björn Bjarnason, jafnaldri þeirra, hefur fram til þessa stutt aðild Íslands að samstarfi erlendra ríkja og barist fyrir vestrænum samskiptum. En nú hverfur hann frá því á gamals aldri og leggst á sveif með gömlu kommunum. Áhugaverð örlög þar.“