- Advertisement -

Ríkisstjórnin á sér ekki viðreisnar von

Bessí Þóra Jónsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins, skrifaði í Moggann í dag:

Bessí Þóra Jónsdóttir,

„Tæp tvö ár eru liðin frá síðustu alþingiskosningum. Ríkisstjórnin sem tók við völdum sagðist hafa plan og ætlaði að berja niður vexti og verðbólgu með sleggju. Þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar um að planið sé að virka, að allt sé á réttri leið, þá er raunveruleikinn allt annar.

Ríkisstjórnin hefur ekki sparað stóru yfirlýsingarnar á flottum blaðamannafundum, hún hefur reyndar lítið sem ekkert sparað yfirhöfuð. Það er ekki nóg að boða atvinnusköpunarhaust eða verðlækkunarsumar. Hugurinn ber þig bara hálfa leið, aðgerðir þurfa að fylgja. Það þarf að gera það sem þú segist ætla að gera. Með sífelldum endurtekningum á ágæti eigin verka og verðleikum er hægt að blekkja sjálfan sig en ekki heila þjóð til lengdar.

Eftir stendur
klofin þjóð og
ráðvillt ríkisstjórn.

Afleiðingarnar blasa við. Ríkisstjórnin réð ekki við verkefnið og gerði í raun illt verra með því að drífa áfram verðbólguna síðustu misseri með óhóflegum skatta- og gjaldskrárhækkunum. Þau helltu olíu á eldinn í stað þess að slökkva verðbólgubálið. Þegar ríkisstjórnin hafði siglt í strand með efnahagsmálin, og hafði gefist upp á upphaflega verkefninu, var ákveðið að ræsa plan B, aðildarumsókn að Evrópusambandinu, sem átti að verða töfralausn á öllum okkar vandamálum. Þar fór fremst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Þjóðin hafnaði þeim leiðangri þrátt fyrir loforð um lægri vexti, ódýrari matarkörfu og betra líf. Grasið átti að vera miklu grænna í ESB. Sem betur fer sá þjóðin í gegnum þennan málflutning og sagði nei, og Nei-Áfram Ísland vann stórsigur. Og nú á Viðreisn sér ekki viðreisnar von.

Eftir stendur klofin þjóð og ráðvillt ríkisstjórn með veikara umboð og litla trú á verkefninu sem er orðið enn erfiðara en í upphafi kjörtímabilsins. Nú ætlar ríkisstjórnin að ræsa plan C, sem virðist vera endurunnin útgáfa af plani A og plani B. Leitin að sleggjunni er hafin á ný og minni útgáfa af auknu Evrópusamstarfi er fram undan. Ríkisstjórnin mun grípa aftur til skattahækkunarsvipunnar og láta höggin dynja á venjulegu fólki og fyrirtækjum í landinu, líkt og fyrr á kjörtímabilinu. Áhugi á að hagræða í ríkisrekstri er enginn.

Íslendingar hafa hafnað þeirri vegferð ríkisstjórnarinnar að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið og í því felst vantraust á núverandi ríkisstjórn. Þjóðin hafnaði forgangsröðun ríkisstjórnarinnar enda bíða mun mikilvægari verkefni. Ráði ríkisstjórnin ekki við verkefnið á hún að stíga til hliðar og treysta þjóðinni til að velja nýja leiðtoga sem hafa kjark og trú á Íslandi og eigin framtíð.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: