- Advertisement -

Ríkisstjórnin hýrudregur kirkjuna

„…ríkið, sem er bara innheimtuaðili gjaldanna sem tilheyra sóknunum, hefur tekið til sín sífellt stærri hluta innheimtunnar.“

Diljá Mist Einarsdóttir.

„Hins vegar má ég til með að nefna tillögu hæstvirtd ráðherra og ríkisstjórnarinnar um að lækka sóknargjöldin og aftur kemur það mér ekki á óvart. Þetta er slagur sem ég hef tekið hér í þinginu sem nefndarmaður og nú síðast sem formaður í efnahags- og viðskiptanefnd og held ótrauð áfram að taka,“ sagði Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokki.

„Mér er mjög minnisstætt hverjir tóku þann slag með mér og hvernig atkvæði hafa fallið í þinginu um sóknargjöldin, hverjir stóðu með sóknum landsins. Áhugasamir geta bara flett þessu upp. Því kemur tillaga úr ranni Viðreisnar og Samfylkingar mér ekki á óvart.

Um þetta langar mig að nefna sérstaklega að söfnuðir þjóðkirkjunnar hafa liðið fyrir skerðingu á sóknargjöldum sem kemur niður á mikilvægu starfi kirkjunnar og viðhaldi húsnæðis í eigu sóknanna. Gríðarlega mikilvægt starf kirkjunnar hefur liðið fyrir þetta en ríkið, sem er bara innheimtuaðili gjaldanna sem tilheyra sóknunum, hefur tekið til sín sífellt stærri hluta innheimtunnar.

Það er ekki síst kirkjustarfið á landsbyggðinni sem líður fyrir þetta, starf sem er jafnan þungamiðja í byggðum landsins. Staðan er þung og það er jafnvel orðið erfitt að halda úti grunnstarfi í mörgum sóknum víða um landið. Við Sjálfstæðismenn munum berjast gegn þessari aðför að sóknum landsins. Ég bið landsmenn að athuga hverjir það eru sem taka hér ítrekaðan slag á Alþingi með sóknum landsins og gegn lækkun sóknargjalda. Hæstvirtur fjármálaráðherra Viðreisnar og þessi ríkisstjórn er ekki í þeim hópi,“ sagði Diljá Mist á Alþingi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: