- Advertisement -

Rukkað inn á Gullfoss, Geysi og Þingvelli

Ögmundur Jónasson skrifaði:

„Það má segja að það sé í sjálfu sér gleðilegt að sjá fólk gleðjast. En varla þó yfir hverju sem er. Núverandi ríkisstjórn telur mörg tilefni til að kyssast og faðmast og fagna.

Yfirleitt eru það formenn stjórnarflokkanna, valkyrjurnar þrjár eins og þær gjarnan kalla sig, sem kyssast hvað mest. En eins og sjá má á forsíðumynd Morgunblaðsins fékk Daði varaformaður Viðreisnar að vera með í faðmlaginu að þessu sinni á meðan formaðurinn Þorgerður stóð álengdar og beið þess að innilegheitunum linnti.“

Bæta á í samkvæmt
nýútkomnu
fjárlagafrumvarpi.

„Og hverju var verið að fagna? Að þessu sinni var verið að fagna hallalausum fjárlögum. Þar er að vísu mörgu enn ósvarað. En þó virðist eitt liggja ljóst fyrir og það er að það eru notendur margvíslegrar þjónustu í heilbrigðiskerfi, samgöngum og víðar – og viti menn, einnig njótendur náttúrunnar sem verða látnir borga brúsann.

Nú er það svo að þegar er rukkað við Gulfoss, Geysi og á Þingvöllum með bílastæðagjaldi. En bæta á í samkvæmt nýútkomnu fjárlagafrumvarpi. Og eftir því sem séð verður á rukkunargjaldið ekki að renna til þessara ferðamannastaða heldur í ríkissjóð. Til stendur að hefja gjaldtökuna um mitt komandi ár og nemur áætlaður afrakstur 5 milljörðum króna á árinu. Það þýðir að við erum að öllum líkindum að tala um fleiri náttúruperlur en hér eru nefndar. Þessu er erfitt að átta sig á því við lestur fjárlagafrumvarpsins kemur fram að allt er ófrágengið um framkvæmdina.

Þessi mál hafa verið í miklum ólestri um árabil. Þannig fer fram gjaldtaka við Kerið í Grímsnesi og víðar á landinu sem enn er að því er ég best veit ólögleg.

Samúð mín er öll hjá landeigendum sem búa yfir náttúruperlum sem sótt er í og ágangur því mikill. Hægur vandinn væri að innheimta komugjöld til landsins sem bæði innlendir og erlendir ferðamenn greiddu og þau látin renna til ferðamannastaða bæði í ríkis- og í einkaeigu. Því nefni ég þetta að tilfinning mín segir að fyrir þessu sé almennur vilji í landinu. Það séu hins vegar rekendur flugfélaganna sem hafi komið í veg fyrir þessa lausn. Það tel ég mig vita.

En mikið er þetta dapurlegt að geta ekki haldið markaðsvæðingaráráttu sinni í skefjum, þurfa að láta fólk borga fyrir að njóta þess sem við öll eigum. Er virkilega stuðningur við þetta í öllum stjórnarflokkunum?

Fyrir bragðið verður minna til skiptanna fyrir þá sem bjóða upp á vöru og þjónustu. Gæti verið að ríkisstjórn sem vill hugsa allt í krónum og aurum skilji þá röksemd?“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: