Auðunn Arnórsson, sem er með meistaragráður í stjórnmála- og stjórnsýslufræðum, skrifaði grein á Heimildina. Hér er stutt brot af greininni:
„Valdamesta ríki heims, sem fram til þessarar stundar hafði áskilið sér titilinn „leiðtogi hins frjálsa heims“, sagði sig þannig með ótvíræðum hætti frá þessu fyrra hlutverki sínu. Í kjölfarið dró Trump-stjórnin Bandaríkin út úr fjölmörgum stofnunum SÞ og skar fjárframlög Bandaríkjanna til samtakanna niður um allan helming. Þessar og aðrar ákvarðanir Trump-stjórnarinnar mörkuðu jafnframt skýr tímamót í afstöðu Bandaríkjanna til þess alþjóðakerfis sem byggst hafði upp frá lokum síðari heimsstyrjaldar á grunni alþjóðalaga og samningsbundins fjölþjóðasamstarfs. Sameinuðu þjóðirnar eru hornsteinn þess kerfis sem reist var á þeim lærdómi sem dreginn var af heimsstyrjöldunum tveimur.
Það kerfi alþjóðalaga og alþjóðastofnana sem byggt var upp á þessum tíma hefur verið mikilvæg undirstaða tilvistar og sjálfstæðis smærri ríkja heims. Það er tilraun til að setja stórveldum skorður og draga úr þeirri hættu að þau beiti valdi og yfirgangi gagnvart smærri þjóðum á eigin áhrifasvæðum. Samkeppni slíkra stórvelda leiddi til styrjaldanna.“
Val fyrirsagnarinnar er Miðjunnar.