- Advertisement -

Segir Guðrúnu vera krata inn við beinið

„Þegar þú varst með þessa Stalín­ista sem voru í stjórn mat­vælaráðherra í síðustu rík­is­stjórn var gert allt, alla­vega hvað okk­ur varðar, til að koma okk­ur á kald­an klak­ann.“

Kristján Lofts­son, for­stjóri Hvals hf., seg­ir Guðrúnu Haf­steins­dótt­ur formann Sjálf­stæðis­flokks­ins vera krata inni við beinið. Þetta mun koma fram í viðtali sem blogg Moggans hefur birt. Þar ræðir Aríel Petursson, formaður Sjómannadagsráðs við Kristján.

Kristján vís­ar í þann tíma þegar Guðrún var í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna. Seg­ir hann hana hafa aðhyllst krata­hugs­un þar sem að þeir sem ekk­ert eiga í hlut­un­um hafi samt ætlað að stjórna.

„Ég held hún sé krati inn við beinið, því miður,“ seg­ir Kristján. Hann seg­ir hana að minnsta kosti hafa birtst sér þannig þegar hann var að eiga við hana á sín­um tíma.

„Ef hún ætl­ar að fara að sækja allt þetta Viðreisn­arlið sem er allt meira og minna vinstri krat­ar og verra en það marg­ir, þá held ég að hún eigi ekki er­indi sem erfiði, ekki fyr­ir Sjálf­stæðis­flokk­inn, finnst mér,“ seg­ir Kristján einnig um Guðrúnu.

Um síðustu ríkisstjórn, ekki síst Svandísi Svavarsdóttir segir Kristján:

„Þegar þú varst með þessa Stalín­ista sem voru í stjórn mat­vælaráðherra í síðustu rík­is­stjórn var gert allt, alla­vega hvað okk­ur varðar, til að koma okk­ur á kald­an klak­ann. Það var heilt lið í því að finna ein­hverj­ar gluf­ur í þessu reglu­verki sem gæti komið okk­ur á kald­an klak­ann. Þetta er mat­vælaráðuneytið.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: