Alþingi: „Arðsamasta framkvæmd í samgöngumálum á Íslandi í dag er augljóslega, og held ég á alla vitorði, gerð Sundabrautar og það hefur verið þannig í áratugi. Hvers vegna ekki hefur verið ráðist í þá framkvæmd er mjög mörgum algerlega hulin ráðgáta en hefur eitthvað að gera með stjórnartauma Samfylkingar í höfuðborginni. Þeir hafa flækst þar fyrir árum og áratugum saman, byggt í vegstæðinu og ýtt þessu á undan sér allan tímann,“ sagði Karl Gauti Hjaltason Miðflokki á Alþingi.
Ögn síðar sagði hann: „Ég held, frú forseti, að við Íslendingar höfum verið nokkuð, fyrir utan Sundabraut, ágæt í að leysa þetta vandamál. Við höfum tekið arðbærar framkvæmdir, ég nefni Hvalfjarðargöng og Vaðlaheiðargöng, eins og háttvirtur þingmaður nefndi sjálfur, sem er kannski ekki eins arðbær, og fjöldamargar aðrar framkvæmdir. Við höfum dansað þennan línudans ágætlega hingað til, að mínu mati.“