- Advertisement -

Seltjarnarnes að sökkva í skuldafeni

Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, hefur áhyggjur af bæjarsjóðs og stjórn bæjarins.

„Það er ótrúlegt að hugsa til þess að það sé ekki liðið ár frá því að Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi keyrðu kosningabaráttu sem byggði á því að lækka ætti skatta á Seltjarnarnesi,“ skrifar Guðmundur Ari.

Hér er bein tilvitnun í endurskoðendaskýrslu Grant Thornton:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Samanlagður halli af rekstri A-hluta nemur 969,5 m.kr. árin 2021 og 2022 eða sem nemur tæplega 10% af tekjum sömu ára. Ljóst er að við slíkan hallarekstur verður ekki búið lengi. Er því brýnt að sveitarfélagið setji fram markvissa áætlun um viðsnúning í rekstri, ss. í formi aukinna tekna, aðhalds í rekstri eða sölu eigna í þeim tilgangi að lækka skuldir.“

„Áherslur Samfylkingar og óháðra fyrir kosningar voru einfaldar og eru enn í gildi:

  • – Stöndum vörð um þá þjónustu sem íbúar kalla eftir.
  • – Þróum miðbæjarsvæðið og seljum þar byggingarland til að minnka lántöku og fjölga skattgreiðendum.“

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: