Ég er ekki viss um að þetta sé alveg raunhæf hugmynd eða yfirleitt farsæl, en hún er meðal þess fjölmarga sem ekki var alveg rætt í aðdraganda kosninganna.
Guðmundur Andri Thorsson skrifaði:
Evrópuumræðan hættir ekkert þótt kosið hafi verið um daginn – eða gosið, því þetta var einn atburður í langri keðju, mjög stór atburður að vísu en ekki endapunkturinn. Áfram gætir nokkurs kosóróa og margir sem þurfa að tjá sig; og má vart á milli sjá hvorir eru óánægðari með sinn hlut, þeir sem töpuðu eða sigurvegararnir.
Ég held að erlendir miðlar einfaldi málin þegar þeir tengja neiyrði Íslendinga við aðildarviðræðum afdráttarlaust við trumpisma eða fasisma; þetta á sér dýpri rætur en svo og nærtækara að hugsa þetta út frá rótgrónum íslenskum þankagangi og sögu en tangasókn öfgaafla hægra og vinstra megin að hinni frjálslyndu miðju sem ráðið hefur ríkjum í Evrópu að kalla má frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Auðvitað tengist þetta, en við sáum fólk líka segja nei á ýmsum öðrum forsendum; lýðræðishalla, hættu á valdatöku fasista í lykilríkjum sambandsins og fleiri ástæður voru tilgreindar.
Mörg okkar líta á
ESB sem stórveldi…
Sú ábending Evrópusinna að nú þegar tökum við áhrifalítil við alls konar lögum og reglum frá ESB gegnum aðildina að EES virtist ekki alveg ná eyrum fólks og þar held ég að þankagangur eyjaskeggjans sé mikilvægur. Við munum öll orð Jóns Loftssonar höfðingja í Odda á 12. öld við Þorlák biskups helga þegar hann flutti skilaboð erkibiskups í Niðarósi í jarðadeilum höfðingja og kirkjunnar: „Heyra má ég erkibiskups boðskap en ráðinn er ég í að hafa hann að engu. Og eigi hygg ég að erkibiskup vilji betur eða viti en mínir foreldrar; Sæmundur hinn fróði og synir hans.“
Kirkjan er þarna yfirþjóðleg stofnun sem Íslendingar hafa fallist á að tengjast en ekki er þar með sagt að hún skuli fá að ráða því sem hún vilji; hér eru sterkir íslenskir höfðingjar sem vilja hafa hlutina eftir sínu höfði. Kunnuglegt? Hugmyndin með aðildinni að EES er þá sú að Brusselvaldið geti svo sem alveg sett sínar reglur og lög og sent okkur, en við getum í krafti fjarlægðar og fámennis – og þrjósku og krúttleika – vinsað úr þeim að vild og framfylgt að geðþótta. Ég er ekki viss um að þetta sé alveg raunhæf hugmynd eða yfirleitt farsæl, en hún er meðal þess fjölmarga sem ekki var alveg rætt í aðdraganda kosninganna.
Mörg okkar líta á ESB sem stórveldi frekar en bandalag fullvalda ríkja og lúti einum vilja og starfi eftir einsleitum hagsmunum. Nátengd þessari sýn er sú hugmynd – og kannski nærtækari – að ESB sé nokkurs konar menntað einveldi. Þar ráði ríkjum langskólagengnir sérfræðingar á alls konar sviðum og skrifi sín hámenntuðu sérfræðiálit og setji okkur vitleysingunum lög og reglur um það sem við megum og megum ekki gera. Ég held að gegn þessari óorðuðu hugmynd um ESB hafi margir risið. Þeir ætli ekki að láta „sérfræðinga að sunnan“ ráða hér öllu.
…Hún leiddi í ljós
djúpstæðan ágreining…
Þá gleymdist að vísu að í sjávarútvegsmálum eru Íslendingar einmitt „sérfræðingar að norðan“. Og sú tíð löngu liðin að brjóstvitið ráði aðallega för. Hér sem annars staðar starfa hálaunaðir sérfræðingar að því að móta umgjörð lífs okkar. Og annað gleymdist líka: ógnin úr vestri. Í Bandaríkjunum ríkir nú stjórn sem kenna mætti við „hið ómenntaða einveldi“, stjórn sem hirðir ekki um alþjóðalög eða reglur en ásælist auðlindir og lönd í krafti stærðar og valds. Margur neikvæðismaðurinn held ég að hafi reyndar vitað af þessari ógn – en lagt að jöfnu við ógnina frá „hinu menntaða einveldi“ og hugsað með sér að Íslendingar geti í krafti fjarlægðar, fámennis og krúttstöðu spilað á þetta ástand, fengið út úr því það sem þeim hentar en leitt hjá sér hitt.
Við sjáum hvert það leiðir. En við búum enn við nokkurn kosóróa. Gjár hafa breikkað. Maður sér fólk úr Já-herbúðum tala um að hunsa íslenskar landbúnaðarvörur, reitt yfir því hversu eindregna afstöðu bændaforystan tók í því að standa vörð um tollamúra og séraðgang að íslenskum neytendum með hinu ögn frekjulega slagorði: Þú veist hvaðan það kemur (sem við vitum einmitt ekkert alltaf). Ég held að við viljum flest veg íslensks landbúnaðar sem mestan, við gerum okkur grein fyrir nauðsyn þess að hann haldist á lífi, sem er hreinlega þjóðaröryggismál, en erum held ég líka þreytt á því að framleiðendur geti gengið út frá neytendum sem vísum. Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar voru nánast 50–50, og hún leiddi í ljós djúpstæðan ágreining sem ekki er lengur hægt að bæla og setjast ofan á og þegja um heldur þarf að ræða með gagnkvæmri virðingu, til dæmis með því að segja okkur „hvaðan það kemur“.
Greinina birti Guðmundur Andri Thorsson á Facebook.