- Advertisement -

Sjö barna föður sagt upp eftir 17 ára starf hjá Norðuráli!

„En mér er gjörsamlega misboðið hvað þessa uppsögn varðar og þetta er alls ekki fyrsta uppsögn í Norðuráli sem mér verður misboðið yfir!“

Vilhjálmur Birgisson.

„Eitt af erfiðustu verkefnunum sem ég sem forystumaður í stéttarfélagi þarf takast á við er þegar félagsmenn mínir koma til mín eftir að hafa verið sagt upp störfum og misst lífsviðurværi sitt,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson.

„Oft eru svona mál afar tilfinningaþrungin enda grípur fólk sem verður fyrir því að vera sagt upp mikið vonleysi og hræðsla við að missa lífsviðurværi sinnar fjölskyldu.

Ábyrgð atvinnurekanda þegar kemur að uppsögnum er mikil þótt vissulega komi svo sannarlega upp atvik eða ástæður þar sem nauðsynlegt er að segja fólki upp. Ástæður eins og samdráttur, erfiðleikar í rekstri, skipulagsbreytingar eða jafnvel að viðkomandi aðili hefur gerast brotlegur í starfi. Allt eru þetta atvik sem lítið er hægt að segja við ef rétt er að uppsögninni staðið og forsendur fyrir uppsögn eru byggðar á faglegum og réttum forsendum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

og hafi mætt á fjölskylduskemmtun sem Norðurál hélt án þess að skrá sig.

Ástæða þess að ég skrifa þennan pistil er að á laugardagsmorgunn fékk ég hringingu frá félagsmanni mínum sem tjáði mér að honum hefði verið sagt upp störfum hjá Norðuráli. Þessi umræddi starfsmaður hafði unnið í 17 ár hjá Norðuráli og á þessum 17 árum hafði hann hvorki fengið munnlega né skriflega áminningu að eigin sögn. Þessu til viðbótar var hann sjö barna faðir og var því eðlilega að framfleyta afar þungu heimili fjárhagslega.

Umræddur starfsmaður tjáði mér að hann hefði verið kallaður á fund með framkvæmdastjóra steypuskálans og mannauðsstjóra þar sem honum var tjáð að honum væri sagt upp störfum og bæri að yfirgefa vinnustaðinn.

En hver var ástæðan sem þessum sjö barna föður með 17 ára starfsreynslu var gefin fyrir uppsögninni? Jú ástæðan var að hann var væri að tala illa um fyrirtækið og hafi mætt á fjölskylduskemmtun sem Norðurál hélt án þess að skrá sig! Umræddur starfsmaður mótmælti harðlega á umræddum fundi að hann væri að tala illa um fyrirtækið en það hafði ekki áhrif á uppsögnina sem framkvæmdastjóri steypuskála hafði skellt í andlitið á mínum félagsmanni.

Við þessa frásögn félagsmanns míns fann ég til mikillar reiði fyrir hans hönd en jafnframt fann ég gríðarlega til með honum að verða fyrir þessari uppsögn enda maður með 17 ára starfsreynslu, aldrei fengið áminningu og þessu til viðbótar að framfleyta stórri fjölskyldu.

Eins og alltaf þegar ég fæ svona uppsagnir inn á borð til mín sem byggðar eru á svona stórundarlegum forsendum sem að mínu mati standast ekki eina einustu skoðun leita ég mér upplýsinga til að sannreyna hvort frásögn félagsmannsins séu rétt. Ég hafði því samband við samstarfsfélaga hans víða í Norðuráli til að kanna allar hliðar málsins og eyddi ég laugardagsmorgni í að komast til botns í þessari undarlegu uppsögn.

Það er skemmst frá því að segja að allir sem ég talaði við sem hafa starfað með umræddum félagsmanni hjá Norðuráli gáfu honum afar góð meðmæli og vísuðu því algerlega á bug að minn félagsmaður hafi ástundað að tala illa um fyrirtækið.

Að öllu þessu sögðu er þessi uppsögn óskiljanleg, ósanngjörn og fyrir neðan allar hellur…

Það vill nú þannig til að þessi umræddi félagsmaður minn hefur oft komið á skrifstofu mína til að ræða um hinn ýmsu kjaramál og réttindi og í öll þau skipti sem hann hefur komið til viðræðna við mig hefur hann aldrei verið að kasta rýrð á fyrirtækið.

Það kom einnig fram hjá samstarfsmönnum að minn félagsmaður hafi ætíð unnið verk sín af samviskusemi og dugnaði og það kom líka fram hjá starfsmönnum að vaktin sem hann var á sé í áfalli eftir þessa óskiljanlegu uppsögn. Ekki bara það heldur fékk ég að heyra að mórallinn í steypuskálanum öllum væri við frostmark eftir þessa uppsögn því fólki fannst hún ósanngjörn og algerlega byggð á röngum forsendum. Rétt er að geta þess að minn félagsmaður hefur vegna þess að hann er að reka þungt heimili þurft að taka mikið af aukavöktum til að framfleyta sér og sinni fjölskyldu og hefur því unnið með öllum vakthópum í steypuskálanum.

Þótt samúð mín liggi algerlega hjá mínum félagsmanni sem varð fyrir þessari óskiljanlegu uppsögn af hálfu framkvæmdastjóra steypuskálans þá finn ég líka til með samstarfsfólki hans sem finnur eðlilega fyrir depurð og ótta eftir svona uppsögn.

Að öllu þessu sögðu er þessi uppsögn óskiljanleg, ósanngjörn og fyrir neðan allar hellur enda með ólíkindum að byggja uppsögn á einhverju sem ekki er sannleikanum samkvæmt og það eftir að viðkomandi hefur starfað við og þjónustað fyrirtækið í 17 ár.

Það er ábyrgðarhlutur að vera atvinnurekandi og það þarf að koma fram við starfsmenn ef sanngirni og virðingu þegar svona veigamiklar ákvarðanir eru teknar, enda eru atvinnurekendur að véla með lífsafkomu sinna starfsmanna. Munum að mannauður er hjarta hvers fyrirtækis og uppsagnir sem byggjast á röngum forsendum bera merki þess að verið sé að reka óttastjórnun og eigi að vera öðrum „víti til varnaðar.“

Svoleiðis mannauðsstefna getur aldrei endað með öðru en skipsbroti enda lifir ekkert fyrirtæki af ef ekki er fyrir dugnað og kraft þeirra sem starfa á gólfinu ef svo má að orði komast. Það er fólkið sem skapar hagnað fyrirtækja.

Ég reyndi að fá þessari ákvörðun hnekkt en því miður tókst það ekki og því sá ég mig knúinn til að skrifa um þetta mál enda er hlutverk stéttarfélaga að verja atvinnuöryggi og lífsafkomu sinna félagsmanna með kjafti og klóm og það reynum við í Verkalýðsfélagi Akraness ætíð að gera.

En mér er gjörsamlega misboðið hvað þessa uppsögn varðar og þetta er alls ekki fyrsta uppsögn í Norðuráli sem mér verður misboðið yfir!“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: