- Advertisement -

Skammastu þín Guðni Ágústsson!

Ráðherrarnir Lilja Dögg og Ásmundur Einar fá væna sneið frá Tómasi Ellert.

Skítadreifarar Framsóknarflokksins, hringja nú villt og galið í Miðflokksfólk og eru með rógi að reyna að fá okkar fólk til að flykkjast að baki Framsóknarflokknum.

Þannig skrifar Tómas Ellert Tómasson, sem er bæjarfulltrúi í sveitarfélaginu Árborg, frambjóðandi til alþingis í Reykjavík norður og kosningastjóri Miðflokksins á landsvísu, í grein á Vísi.

Ekki er annað að sjá en systurflokkarnir takist á um atkvvæðin í kosningunum eftir viku.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Það andar köldu milli Framsóknarflokks Sigurðar Inga og Miðflokks Sigmundar Davíðs.

Tómas Ellert er líka ósáttur við framgöngu Ásmundar Einars og Lilju Alfreðsdóttur. Skoðum skrifin:

Undanfarna daga og vikur hef ég fengið upplýsingar úr ýmsum áttum og frá fyrstu hendi um að Guðni Ágústsson hafi brugðið sér í það hlutverk að vera einn afkastamesti skítadreifari Framsóknarflokksins.

„Ég hef vegna góðra fyrri kynna minna af þér Guðni, ekkert verið að gera eitthvað fjas vegna þessa. En nú, þegar þér hefur borist liðsstyrkur í ráðherrunum Ásmundi Einari, barnamálaráðherra og Lilju Alfreðs menntamálaráðherra undanfarið með því að setja sig í beint samband við fólk í þeim tilgangi að breiða út lygar og það hefur komið í ljós að hér eru um að ræða vel skipulagða og stigmagnandi rógsherferð í minn garð, í garð formanns Miðflokksins og annarra flokksfélaga minna, að þá er mér nóg boðið. Orðið skítadreifarar er jafnan notað um slíkt!

Aðferðafræðin að baki rógsherferðinni

Skítadreifarar Framsóknarflokksins, hringja nú villt og galið í Miðflokksfólk og eru með rógi að reyna að fá okkar fólk til að flykkjast að baki Framsóknarflokknum. Aðferðir þeirra minna um margt á aðförina frægu sem gerð var að Jónasi á Hriflu þar sem að reynt var að halda því fram að eftirtektarverðasti stjórnmálaskörungur síðari tíma væri sinnisveikur.

Aðferðarfræðin er sú, að ráðherrar Framsóknar setja sig nú beint í samband við áhrifafólk innan okkar raða. Tveir ráðherrar Framsóknar hafa sem dæmi sett sig beint í samband við áhrifafólk innan okkar raða með loforðum um „velvild“, lýsi þeir yfir stuðningi við Framsókn. Þessi ógeðfellda aðferð hefur sem betur fer lítinn árangur borið. Þó eru því miður dæmi um slíkt. Megi þeir hafa skömm fyrir.

Beint til þín Guðni Ágústsson

Ég hef lagt mig fram um það sem kosningastjóri Miðflokksins að eiga við ykkur málefnalega umræðu og lagt það fyrir mína flokksfélaga að gera slíkt hið sama, þó það komi spánskt fyrir sjónir hve þið víkið oft frá eigin stefnu. Stefna ykkar byggist á síendurteknum frösum sem enga merkingu hafa. Það skynsamlegasta sem frá ykkur kemur er afrit og endurgerð af stefnu Miðflokksins. Réttsýnt fólk ætti að sjá hvenær stjórnmálaflokkur skreytir sig með stolnum fjöðrum.

Við þig vil ég segja Guðni minn og frændi, á opinberum vettvangi, að ég hafna fyrirfram öllum loforðum frá þér og þínum um einhverja „velvild“. Mikil er nú ósvífni þín að þú skulir haga þér með þessum hætti gagnvart mínum mætu flokksfélögum, eftir þá velgjörð sem ég hef veitt þér í mínum störfum sem bæjarfulltrúi í Svf. Árborg. Í þeim störfum hef ég ætíð tekið erindum og ábendingum þínum vel og fylgt þeim eftir innan stjórnkerfisins, enda oft góðar og þarfar ábendingar. Nú langar mig til að spyrja þig: „Eru þetta þakkirnar?“ Ég sem þekkti þig ekki af neinu nema góðu. Skammastu þín Guðni Ágústsson!“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: