- Advertisement -

Skítamórall í Reykjavík

„Reikna má með að starfsfólk og stéttarfélög þeirra nái vopnum sínum smám saman, andmæli við uppsögnum verði háværari og skipulagsbreytingar á sviðum Borgarinnar geti orðið erfiðari en er nú í Ráðhúsinu – og haft eftirmála.“

Haukur Arnþórsson.

RVK: Allir flokkarnir þrír, sem mynda nýja meirihlutann í höfuðborginni, vilja eigna sér þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til með uppsögnum starfsfólks.

Á sama tíma eru boðaðar frekari uppsagnir. 40 prósentum starfsmanna verður sagt upp, að sagt er. Starfsfólk hlýtur að skjálfa á beinunum vegna nagandi óvissu um hvert verður næst.

Bágt er að trúa að svo margt starfsfólks séu ónytjungar hjá borginni.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur hefur tjáð sig um máiið:

Hann segir ástæðurnar bæði pólitískar og faglegar. „Pólitískar að því leyti að nánasta samstarfsfólki fráfarandi borgarstjórnar var sagt upp, fólkinu sem unnið hefur við upplýsingamál og stefnumótunarmál á æðsta plani Borgarinnar – væntanlega verður eitthvert skipulag myndað til að endurvekja með nýju nafni hluta af þeim störfum – og faglegar af því að verið er að breyta starfsemi borgarinnar í takt við það sem samstarfssáttmáli borgarstjórnarflokkanna gerir ráð fyrir – og taka á offramboði opinberrar þjónustu (hugtak sem ég skýri ekki núna), sem er eða ætti að vera aðalatriðið,“ segir Haukur.

Hann spáir því að frekari skipulagsbreytingar verði erfiðar:

„Reikna má með að starfsfólk og stéttarfélög þeirra nái vopnum sínum smám saman, andmæli við uppsögnum verði háværari og skipulagsbreytingar á sviðum Borgarinnar geti orðið erfiðari en er nú í Ráðhúsinu – og haft eftirmála.“

Enn sem komið er er helsta mál nýja meirihlutans uppsagnir starfsfólks.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: