- Advertisement -

Stefna Vinstri grænna dauður bókstafur

Segja má að svör forsætisráðherra og formanns utanríkisnefndar við fyrirspurnum mínum hafi endanlega gert formlega stefnu
VG í öryggis- og varnarmálum að dauðum bókstaf. Þau marka upphaf að nýjum áfanga í víðtækari samstöðu á Alþingi um þessi efni
en verið hefur.

Lifandi pólitík VG er nú þessi: Hagsmunir Íslands eru best tryggðir
í samstarfi við vinaþjóðir þess. Herstöð er ekki forgangsatriði en ekki
útilokuð ef NATO telur það nauðsynlegt. Tvíhliða varnarsamningur
Íslands og Bandaríkjanna stendur á traustum grunni.

Þetta er lungað úr grein Þorgerðar Katrínar, formanns Viðreisnar, í Fréttablaðinu í dag.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: