Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar:
Stjórnarandstaðan er öll að fara á taugum útaf einni heimsókn. Sigmundur er samur við sig, hann á erfitt með útlönd, en að formaður Sjálfstæðisflokksins reyni að tortryggja þessa heimsókn staðfestir það sem við vissum. Sjálfstæðisflokkurinn aðhyllist þúfnahyggju og er að breytast í jaðarflokk með nýjum formanni. Alþjóðaviðskipti eru grundvöllur framfara og velferðar. Stórar ákvarðanir eru teknar af þjóðinni, ekki Guðrúnu, Sigmundi, Ursulu eða Þorgerði.
