- Advertisement -

„Stórasti“ strákurinn

Þær voru á sínum tíma leiddar í íslenskan rétt með reglugerð sem flokkssystir Hannesar, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, staðfesti.

Össur Skarphéðinsson skrifaði:

„Ég er fullur samúðar með NEI-hreyfingunni og hægri vængnum sem fengu örlítið sjokk við að sjá Hannes Hólmstein glepjast af vélabrögðum ólígarkanna og Pútíns og gerast málþjónn viðhorfa hans á sjónvarpsstöðinni Russia Today.

Hverjum hefði dottið í hug að af öllum mönnum ætti Hannes eftir að detta í þann pytt að verða „nytsamur sakleysingi“ hjá áróðursmaskínu Pútíns?

Rangfærslur, lygar
og blekkingar…

Hannes ver sig með því að hann tali við alla, þar á meðal miðla sem þó hafi leikið hann grátt, einsog Heimildina og DV. En munurinn á þessum íslensku örmiðlum og öflugasta áróðursmiðli Pútíns, þar sem Hannes Hólmsteinn gerðist tímabundinn kommentator, er stjarnfræðilegur.

Russia Today er öflugasta áróðursmaskínan í heiminum í dag. Henni er fyrst og fremst beitt til að koma áróðri Pútins gegn Úkraínu á framfæri um heim allan. Rangfærslur, lygar og blekkingar hafa keyrt svo úr hófi að litið er á að hún sé partur af stríði Rússa gegn Úkraínu (“hybrid warfare”). Hún hefur því sætt þungum refsiaðgerðum af hálfu ESB.

Ísland hefur staðfest þær einsog önnur EES ríki. Þær voru á sínum tíma leiddar í íslenskan rétt með reglugerð sem flokkssystir Hannesar, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, staðfesti. Síðan þá hefur hún verið uppfærð reglulega, allt fram til dagsins í dag.

Einstakir stjórnendur RT hafa sömuleiðis fengið á sig harðar refsiaðgerðir – einsog margir ólígarkanna í stóði Pútíns. Sjónvarpsstjóranum Margaritu Simonyan er til dæmis bannað að koma til Íslands. Eigur hennar í Evrópu eru frystar. Allnokkrum úr æðstu stjórn þessa nýja vettvangs Hannesar hefur síðan verið bætt við þann lista. En Hannes virðist kunna vel við sig í þessum félagsskap.

Einhvers staðar
verður jafnvel „stórasti“
strákurinn að draga línuna.

Annar reginmunur er sá, að jafnvel Hannes H. Gissurarson amast ekki við því að Heimildin og DV fái að koma óáreitt út á Íslandi jafnvel þó þessir miðlar móðgi hann reglulega með því að flytja af honum sannar frásagnir. Útsendingar RT og Sputnik, og hliðarstöðva þeirra, eru hins vegar bannaðar á Íslandi í dag – skilji ég lögin rétt – vegna þátttöku þeirra í stríði Pútíns gegn Úkraínu.

Hitt er annað að Hannes hefur málfrelsi einsog aðrir og síst allra vil ég að þaggað verði niður í honum. Á langri samferð hefur hann glatt mig of oft til þess. Hann er líka einsog hann lýsti sjálfur í afar hógværri færslu, helsti höfundurinn að nýlegum sigri NEI-hreyfingarinnar.

Ólafur Ragnar fékk að vísu verðskuldað að fljóta þar með enda runnu þar saman „andar sem unnast“ svo vísað sé í Jónas Hallgrímsson. Þegar Hannes burstar í sér tennurnar á morgnana er því vel líklegt að í speglinum sjái hann það sem hann alltaf hefur dreymt um – „stórasta“ strákinn.

En Russia Today er partur af stríði Rússlands gegn Úkraínu. Einhvers staðar verður jafnvel „stórasti“ strákurinn að draga línuna.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: