- Advertisement -

Stórveldisdraumar

…hafi fundið sinn leiðtoga sem er Halldór Benjamín og andlegur leiðtogi hópsins er náttúrlega enginn annar en Ólafur Ragnar Grímsson.

Sigurður Gylfi Magnússon prófessor skrifaði:

„Við sagnfræðingar þekkjum það úr mannkynssögunni að ýmsir aðilar hafa gengið með stórveldisdrauma í maganum. Nú erum við að verða vitni af fæðingu eins slíks. Nei-liðar í síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu ætla sér greinilega að sameinast undir forystu stuttubuxnaliðsins á Morgunblaðinu og peningaaflanna í landinu. Hugmyndin er greinilega að steypa saman íhaldsöflunum hvar í flokki sem þau eru stödd, nefnilega Sjálfstæðisflokki, Miðflokki, Fammsóknarflokki og hluta af VG. Til þess að slík áætlun gangi eftir verður að finna sameiginlegan óvin (fyrir utan erlent afl – ESB) og það er náttúrlega einn merkilegasti stjórnmálamaður síðari tíma, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem þessi hópur hefur greinilega fengið á heilan. Mín spá er sú að Nei-liðarnir (Áfram Ísland hópurinn) hafi fundið sinn leiðtoga sem er Halldór Benjamín og andlegur leiðtogi hópsins er náttúrlega enginn annar en Ólafur Ragnar Grímsson. Þeir ætla sér að taka yfir landið enda fengu þeir yfir 50% atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslunni!

Það verður fróðlegt að sjá hvernig þessari hugmynd reiðir af en ég spái því að byrjað verði á að efna til undirskriftarsöfnunar með kröfu um að Þorgerður Katrín segi af sér embætti og að Viðreisn verði lögð niður. Ég held að þessi hópur sé að læra mikið af gleðigjafanum í vestri (og þess vegna austri) enda eru þeir með sjálfa féfréttina á sínum snærum. – Ég held að frjálslynd öfl í landinu verði að vakna af vondum draumi og átta sig á stöðu mála.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: