- Advertisement -

Sýning á listaverkum úr bókum

Sýningin Endurbókun verður opnuð laugardaginn 1.nóvember í Gerðubergi kl 14. Á sýningunni eru fjölbreytt bókverk unnin úr gömlum bókum, gerð af sjö listakonum úr bókverkahópnum ARKIR.

Á vef Gerðubergs segir að Bókverk séu listaverk sem tengjast á einhvern hátt bókum. Fjölbreytni bókverka sé óendanleg enda hugmyndaflug listamannsins eina takmörkunin. Aðferðirnar sem notaðar eru við sköpunina eru margvíslegar; pappírsbrot, skurður, saumur, vefnaður, málun, teikning og þrykkaðferðir svo nokkuð sé nefnt.

Öll verk á sýningunni eiga það sameiginlegt að vera unnin úr gömlum bókum. Margar þeirra voru fengnar hjá Gerðubergssafni, en bókasöfn afskrifaða árlega nokkurn fjölda bóka til frekari útlána. Þessar gömlu bækur, sem lokið hafa hlutverki sínu, hafa öðlast nýtt líf í listaverkum með endurbókun.

ARKIR hittist reglulega til að bera saman bækur sínar en meðlimir hafa um margra ára skeið stundað bókverkagerð af ýmsum toga. Listakonurnar sinna öllu jafna fjölbreyttri listsköpun á sviði málara- og grafíklistar, textíllistar, ritlistar, myndlýsinga og hönnunar en eiga það sameiginlegt að hrífast af bókverkum meðfram annarri listsköpun.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sjá frétt á vef Gerðubergs.

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: