Jón Trausti Reynisson skrifaði:
„Eitt það áhugaverðasta í nýju skoðanakönnuninni um afstöðu til viðræðna við ESB er aldurshópurinn sem er mest á móti viðræðunum. Það er fólk á aldrinum 30 til 39 ára.
Þetta er fólkið sem var á barns- eða unglingsaldri þegar efnahagshrunið varð.
Þau sem helst styðja viðræður eru yngsta fólkið, 18 til 29 ára, og næsti hópurinn fyrir ofan hinn, 40 til 49 ára, sá aldurshópur sem lenti einna verst í verðbólgunni við banka- og gjaldmiðlakreppuna. Það er fólkið sem varð fyrir forsendubresti á þrítugsaldri. Margir horfðu á verðtrygginguna éta upp alla eign þeirra í húsnæði og búa til neikvæða eiginfjárstöðu.
Á móti upplifðu 30 til 39 ára mikinn uppgang á þrítugsaldrinum, hækkandi fasteignaverð og sögulega litla verðbólgu.“
