- Advertisement -

Þegar hópur fékk 20 prósenta afslátt af Íslandi

Þórður Snær Júlíusson skrifaði: Á Íslandi er hópur fólks sem byggir völd sín og velmegun á því að leikreglurnar og kerfin í þjóðfélaginu hafi verið sveigð að hans hagsmunum. Þessi hópur er nú hræddur vegna þess að verið er að afnema forréttindi hans eftir að flokkunum sem hann hefur tangarhald á var hafnað í kosningum. Hræddastur af öllu er hann við þá auknu samkeppni sem þessi hópur sjálfskipaðra náttúrutalenta þarf að takast á við ef Ísland eykur samstarf sitt við Evrópu. Þetta er ekki stór hópur, en hann telur sig eiga Ísland. Að hluta til eignaðist hann stóra bita í gegnum ótrúlegt fyrirkomulag sem sett var upp eftir bankahrunið og tryggði þeim sem höfðu komið peningum út úr landinu áður en höft voru sett upp tækifæri til að fá heilbrigðisvottorð á þá peninga og 20 prósenta afslátt á eignum á Íslandi.

Stundum á ég samtöl við fólk og fer að tala um atburði sem mér var farið að finnast, vegna eigin áhuga á þeim, að allir væru djúpir inni í. Svo þegar ég þarf að fara að útskýra þá átta ég mig auðvitað á því að það er fjarstæðukennd nálgun af minni hálfu. Af hverju ætti venjulegt fólk sem lifir og hrærist ekki í fréttahringnum eða pólitískum vendingum dag frá degi að vera með einhverja heildræna þekkingu á slíku? Af hverju ætti það að reyna að setja slíka atburði í samhengi við gangverk dagsins í dag og áhrif þeirra á daglegt líf?

Þetta var ein ástæða þess að ég ákvað að setja upp þetta fréttabréf og skrifa, stundum allt of langan, texta til að reyna að ná fram einhverju heildrænu samhengi í það sem ég er með til umfjöllunar á hverjum tíma. Og byggja það á vísun í gögn, sögu og staðfestum frásögnum í stað áróðurs eða magatilfinningar líkt og allt of algengt er orðið í upplýsingaumhverfinu okkar.

Einn atburður, eða frekar ákvörðun, hefur verið mér ofarlega í huga undanfarið eftir eitt svona samtal eins og ég rakti hér að ofan: Fjárfestingaleið Seðlabanka Íslands.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þeir sem lokuðust inni

Hún hljómar tæknilega og óáhugaverð, en dveljið aðeins með mér í þessu. Það eru nefnilega fáar ákvarðanir sem teknar voru eftir bankahrunið sem höfðu jafn mikið um það að segja hverjir náðu undirtökunum í íslensku samfélagi þegar það var stokkað upp eftir þessar efnahagslegu hamfarir. Að uppistöðu var þetta sama fólkið og hafði haft þau undirtök áður og að hluta til sama fólkið og hafði verið í ráðandi stöðum til að leiða hamfarirnar yfir þjóðina.

Sjá greinina alla hér.

Og þar á meðal þetta:


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: