„Fyrsta verk er að ná stöðugleika í efnahagslífi og lækkun vaxta, með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins.“
Svona hefst stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar sem var kosin út á loforð um að lækka hér vexti og ná niður verðbólgu.
Þannig skrifar Guðrún Hafsteinsdóttir. Og heldur áfram:
„Ný könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið sýnir að nærri 90% þeirra sem taka afstöðu telja ríkisstjórnina hafa staðið sig illa í að stuðla að lægri vöxtum og 85% segja hana hafa staðið sig illa í baráttunni við verðbólguna. Þetta er skýr áfellisdómur yfir efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar. Fólk sér í gegnum frasana og slagorðapólitíkina þegar veruleikinn segir allt aðra sögu.
Ríkisstjórnin var
kosin til að leysa
þessi verkefni
Síðasta haust var blásið til verðmætasköpunarhausts. Það varð að vaxtahækkunarvori og í síðustu viku hækkuðu vextir enn aftur. Ríkisstjórnin hefur í reynd gefist upp á verkefninu sem hún var kosin til að leysa og snúið sér að því að endurvekja gamla umsókn Íslands frá 2009 um aðild að Evrópusambandinu.
Málflutningurinn í þeirri kosningabaráttu hefur orðið sífellt mótsagnakenndari. Okkur er sagt að þjóðin verði að kjósa já vegna þess að við vitum ekki hvað gæti komið út úr viðræðunum. Við þurfum að „kíkja í pakkann“ og sjá hvað okkur bjóðist. Sömu ráðherrar lofa því þó um leið að niðurstaðan verði lægra matvöruverð, lægri vextir og minni verðbólga.
Annaðhvort er niðurstaðan óviss eða viss. Það er ekki hægt að halda hvoru tveggja fram eftir því hvað hentar hverju sinni.
Þjóðaratkvæðagreiðslan á laugardaginn snýst um að hefja að nýju aðildarviðræður á grundvelli umsóknarinnar frá 2009. Grunnforsendur aðildar liggja fyrir í sáttmálum og regluverki Evrópusambandsins og í reynslu aðildarríkjanna 27. Það er ekkert þar sem á að koma forvitnu fólki á óvart.
Vextir og verðbólga lækka með aga í ríkisfjármálum, lægri álögum á fólk og fyrirtæki og aukinni verðmætasköpun. Ríkisstjórnin var kosin til að leysa þessi verkefni hér heima og getur ekki afvegaleitt umræðuna frá þeim með því að halda því fram að allt muni lagast við það eitt að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ábyrgðin á efnahagsstjórninni er hennar,“ skrifar formaður Sjálfstæðisflokksins.