- Advertisement -

Þrælmenni hafa af okkur Landspítala

Alþingi „Það eru sem sagt einhver þrælmenni hér úti sem hafa af okkur einn Landspítala á hverju ári í skattsvikum,“ sagði Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í gær, þegar hann gerði skattsvik að umræðuefni.

Hann sagði skattsvik nema 80 milljörðum á ári. „Þetta er kjöraðstæður til að fjárfesta í ríkisskattstjóraembættinu og skattrannsóknarstjóraembættinu,“ sagði þingmaðurinn

Hann vitnaði til skýrslu sem voru kynn nýlega og var unnin af Háskólanum á Bifröst, um íbúðagistingu í heimahúsum í Reykjavík. Hann sagði hafa komið í ljós að árið 2009 voru um 200 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu sem tilheyrðu svokölluðu deilihagkerfi, þar sem var boðið upp á íbúðagistingu, en árið 2014 voru þær orðnar 1.100, eða 450% aukning á fimm árum.

„Það sem er sérstaklega uggvænlegt í þessu samhengi er að einungis 13% af þessum íbúðum eru skráðar og hafa tilskilin leyfi til þess að vera leigðar út til ferðamanna. Nú er þetta málefni sem ég hef rætt við að ég held þrjá ráðherra úr tveimur ráðuneytum og spurt hverju sæti. Víst er það að á vormánuðum síðastliðnum kom fram frumvarp sem náði til hluta af þessu vandamáli en það var ekki nægjanlega vel fram sett og náði því ekki fram að ganga. Það breytir ekki því að við eigum ekki að bíða með að hafa eftirlit með þessari starfsemi þar til fram koma einhver frumvörp sem ég vil segja að lagi lagasetninguna að lagabrotunum. Við eigum ekki að gera það. Við eigum að halda uppi eftirliti og við eigum að draga þá aðila fram sem leigja íbúðir án þess að hafa til þess tilskilin leyfi.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: