- Advertisement -

„Þrátt fyrir dylgjurnar, hatrið og hótanirnar“

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra skrifaði:

„Ég skil að niðurrifsöfl og þjóðernispopúlistar vilji umfram allt losna við öflugasta leiðtoga frjálslyndra alþjóðasinnaðra stjórnmálamanna á Íslandi. Veit líka að þessir sömu aðilar lögðu Nei baráttuna þannig upp. Þessi vandræðalega tilraun til að halda glefsinu áfram í hæla Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra er yfirgengilega aumkunarverð. Það er nefnilega ennþá þannig að hugsjónir og barátta fyrir betra samfélagi hefur vinninginn.

Fátt lýsir styrk Þorgerðar Katrínar betur en sú staðreynd að ef færi gefst á að endurtaka það að bjóða íslenskri þjóð að taka ákvörðun um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið myndi ekki standa á henni að taka slaginn aftur. Þrátt fyrir dylgjurnar, hatrið og hótanirnar.

Eitt mega þessar gungur vita. Þær eru í miklum minnihluta. Við erum fjölmörg sem stöndum stolt við bakið á formanni Viðreisnar, bæði innan flokks og utan. Íslensk þjóð þarf fleiri eins og hana. Færri gungur.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: