- Advertisement -

Þrír for­stjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu

„Tveir Norðmenn og einn Íslendingur, forstjórar þriggja sjókvíaeldisfyrirtækja, fengu birta sameiginlega grein hér í Vísi í síðustu viku og kölluðu eftir lagaumgjörð um fiskeldi sem væri samfélaginu öllu til hagsbóta. Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum tökum undir þessa ósk forstjóranna,“ segir í grein sem Jón Kaldal, sem er félagi íÍslenska náttúruverndarsjóðnum– The Icelandic Wildlife Fund, skrifar á Vísi.

„Mikið vantar upp á í núgildandi lögum að svo sé. Meira áhyggjuefni er að ef lagareldisfrumvarpið sem atvinnuvegaráðherra lagði fram á nýafstöðnu þingi hefði verið samþykkt hefði þjóðin setið uppi með verstu lagaumgjörð um fiskeldi frá því að Alþingi hóf að setja þessum stóriðnaði lög,“ skrifar Jón.

Greinin er löng og mjög forvitnileg. Hér er örstutt dæmi:

Fullyrðing forstjóranna:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Frá því að fiskeldi í sjó hófst á ný upp úr 2010 hefur greinin tekið miklum framförum.“

Staðreyndirnar:

  • Vandi vegna laxalúsar í sjókvíeldi hefur farið vaxandi með alvarlegum afleiðingum fyrir velferð eldislaxana og villta fiska.
  • Lúsaplágan hefur haft í för með sér stóraukna notkun eiturefna og lyfja sem er dælt í opinn sjó kvíanna.
  • Dauði eldislaxa hefur aukist á hverju ári vegna viðvarandi lúsavanda, vegna mikillar fjölgunnar annarra sníkjudýra og vegna þess að alvarlegustu smitsjúkdómar í laxeldi, áður óþekktir á Íslandi, hafa náð mikilli útbreiðslu.
  • MAST sektaði Kaldvík í fyrra fyrir brot á dýravelferðarlöggjöfinni og vísaði öðru mun umfangsmeira og alvarlegra dýravelferðarmáli til rannsóknar lögreglu.
  • Iðnaðurinn losar sífellt meira magn af mengun beint í hafið: fiskaskít, fóðurleifum, skordýraeitri, lyfjum, þungmálmum og örplasti. Í fyrra nam mengunin frá sjókvíaeldinu í fjörðum landsins á við klóakrennsli frá 800 þúsund manns.
  • Útbreidd erfðablöndun vegna eldislax sem hefur sloppið úr kvíunum er staðfest í villtum laxastofnum. Það átti þó ekki að geta gerst ef áhættumat Hafrannsóknustofnunar hefði staðist.“

Hér má lesa greinina alla.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: