- Advertisement -

Tveir kostir, báðir vondir

Umræðan Það er ekki alltaf þrautalaust að hafa skoðanir. Það þurfti Davíð Oddsson að reyna þegar hann skrifaði leiðara dagsins. Hann vill rannsóknir á húsi Orkuveitunnar, og það eðlilega. Davíð komst ekki hjá því að vitna til orða Sigurðar Waage, sem var nánast skipað, að leggja parkett ofan á blaut steypugólf hússins.

Það er svo sem fínt að vitna til Sigurðar, það eitt og sér var ekki vandi Davíðs. Vandinn var sá að eina viðtalið við Sigurð hafði birst í Fréttablaðinu. Það fyrirbæri hefur Davíð aldrei þolað. Í árdaga blaðsins var Davíð forsætisráðherra og lét svo illa að hann boðaði ekki Fréttablaðið á blaðamannafundi. Nóg um það.

Davíð vildi greinilega ekki vitna til Fréttablaðsins. Hann átti annan kost. Og það var Ríkisútvarpið. Sem þykir ekki merkilegur pappír hjá ritstjóranum í Hádegismóum. Þannig sat hann í gær með tvo kosti, báða vonda. Átti hann að vitna í Fréttablaðið? Nei, þá var Rúv betra. Sá galli var þó á að Rúv hafði vitnað í Fréttablaðið. Það var samt skárra að mati ritstjórans. Og í leiðaranum segir:

„Í há­deg­is­frétt­um „RÚV“ sagði svo í gær: „Í Frétta­blaðinu í dag er rætt við Sig­urð Waage húsa­smíðameist­ara sem lagði par­ket í höfuðstöðvum Orku­veit­unn­ar þegar þær voru byggðar. Hann seg­ist hafa lagt par­ketið á blauta steyp­una í vest­ur­húsi höfuðstöðvanna og það komi ekki á óvart að það sé ónýtt.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ekki tókst betur til en svo að Davíð Oddsson ritstjóri kyngdi tveimur ógeðsbitum í einu. Vitnaði bæði til Fréttablaðsins og Rúv. Geri aðrir betur.

-sme


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: