
Gauti B. Eggertsson:
Sérlausn fyrir Ísland er ekki ölmusa. Hún er einfaldlega viðurkenning á augljósri sérstöðu. Stærsta fiskveiðiþjóð sambandsins yrði sú fámennasta.
Hér á eftir eru kaflar úr langri fræðigrein Gauta B. Eggertssonar prófessors. Hann birtir tilvitnanir með greininni. Númer þeirra eru birtar með, sem auðveldar lesturinn. Þar sem Gauti birtir greinina á Facebook er áhugasömum lesendum bent á að finna grein Gauta á Facebook.
Hér byrja valdir kaflar úr greininni:
Sjaldan hefur heil forsíða hvílt á jafn fáum orðum.
Til eru þrenns konar lygar; lygar, haugalygar og Mogginn.
„Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg,“ sagði Morgunblaðið á forsíðu 9. júlí. Ísland fengi engar undanþágur. Hollenska þingið hefði staðfest það. [1]
Vandinn er bara sá að hollenska þingið staðfesti ekkert slíkt.
1. Tvö orð sem urðu að heilli forsíðu
Í hollenska þinginu spurði Michiel Hoogeveen, þingmaður gagnrýninn á ESB, forsætisráðherrann Rob Jetten hvort sameiginlega fiskveiðistefnan fylgdi aðild að ESB.
Jetten svaraði:
„Rétt, já.“ [3]
Það var allt. Sjaldan hefur heil forsíða hvílt á jafn fáum orðum.
Hann var ekki spurður hvort Ísland gæti fengið undanþágur. Hann var ekki spurður hvaða sérlausnir væri hægt að semja um. Þvert á móti hafði hann rétt áður sagt að Ísland væri „nánast fullkomið kandídatsríki“ og að erlendir stjórnmálamenn ættu ekki að blanda sér í íslensku þjóðaratkvæðagreiðsluna. [3]
Það sem komst ekki á forsíðuna
Hollenska þingið samþykkti síðan, með 146 atkvæðum gegn 4, að fiskveiðistefnan skyldi…
Hollenska þingið samþykkti síðan, með 146 atkvæðum gegn 4, að fiskveiðistefnan skyldi, fyrir Holland, vera órofa hluti aðildarviðræðna. Ísland er hvergi nefnt í tillögunni. Og tillagan hefst sjálf á fullyrðingu sem gengur beint í berhögg við forsíðu Morgunblaðsins: að framkvæmdastjórn ESB hafi lýst sig opna fyrir undanþágum á þessu sviði. [2]
Sú yfirlýsing kom frá Costas Kadis, sjávarútvegsstjóra ESB, í Financial Times í apríl. Spurður hvort sambandið væri reiðubúið að veita Íslandi undanþágur svaraði hann: „Já. Það verður hluti af viðræðunum.“ [4]
Að nota tillöguna sem sönnun þess að undanþágur séu ómögulegar er eins og að benda á mótmæli gegn hótelbyggingu og segja:
Sjáið! Þetta sannar að ekkert hótel standi til.
3. Mogginn gegn Mogganum
Tíu dögum fyrir forsíðuna hafði Morgunblaðið birt aðsenda grein, sem lítið bar á, eftir Torben Foss, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í norska sjávarútvegsráðuneytinu. Hann sat í samninganefnd Noregs gagnvart ESB árið 1994 og ráðlagði íslensku ríkisstjórninni í viðræðunum 2010-2013.
Niðurstaða hans var skýr:
„Það liggur fyrir að Ísland mun fá varanlegar undanþágur frá sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB.“
„Það liggur fyrir að Ísland mun fá varanlegar undanþágur frá sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB.“
Sérlausn fyrir Ísland er ekki ölmusa. Hún er einfaldlega viðurkenning á augljósri sérstöðu. Stærsta fiskveiðiþjóð sambandsins yrði sú fámennasta. ESB er fullkomlega ljóst að taka þarf tillit til þess, og það hefur komið fram aftur og aftur, hversu oft sem reynt er að halda öðru fram.
Ísland hefur þar að auki lengi rekið aflamarkskerfi, aflareglur og brottkastsbann. Umbætur ESB frá 2013, hámarksafrakstur, löndunarskylda og aukin svæðisbinding, ganga allar í átt að íslenska kerfinu.
En það er einmitt þess vegna sem kosið verður 29. ágúst. Spurningin á kjörseðlinum er ekki „viltu ganga í ESB?“ heldur: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ [20] Mikið hefur verið einblínt á að sjávarútvegurinn gæti tapað á aðild. Miklu minni athygli hefur vakið málflutningur þeirra sem benda á að í henni kunni að felast tækifæri, því Íslendingar þekkja allra þjóða best hvernig á að reka arðbærar fiskveiðar. Það væri öllu meira vit í „útrás“ á sviði sem við höfum raunverulegt vit á en til dæmis í bankastarfsemi.
