- Advertisement -

Úps líka 14-2 tap fyrir Færeyjum!

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Íslensk skipan veldur því að það er eins og að sofa með tifandi  tímasprengju undir rúminu sínu samanber reynslan úr fjármálahruninu. Þá féll virði krónunnar á svipstundu niður úr öllu valdi með skelfilegum afleiðingum.

„Unnendur efnahagslegs óstöðugleika eru ekki sáttir við myndina sem fylgir með enda opinberar hún að lausaganga krónunnar veldur minni velferð en ella. Færeyjar búa hins vegar við gengisfestu í gjaldmiðlamálum í gegnum dönsku krónuna sem er bundin fast við evruna. Íslensk skipan veldur því að það er eins og að sofa með tifandi  tímasprengju undir rúminu sínu samanber reynslan úr fjármálahruninu. Þá féll virði krónunnar á svipstundu niður úr öllu valdi með skelfilegum afleiðingum.

Rauðu eldfjallasúlurnar á myndinni sýna glögglega yfirburði fastgengis enda jafnast árangur Færeyinga á við 14-2 tap Íslands fyrir Danmörku forðum daga í knattspyrnu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Kostnaðarvöxturinn var því 115 prósentustigum hærri hér á landi.

Verðlag á síðustu 26 árum jókst um 170% á Íslandi á sama tíma og aukningin var 55% í Færeyjum. Kostnaðarvöxturinn var því 115 prósentustigum hærri hér á landi. Og hlutfallslegt samkeppnistap Íslands, að öllu öðru óbreyttu, er því 209%. Gengisfesta hefur því fært Færeyingum umtalsverðan efnahagslegan ávinning og samkeppnisforskot.

Þrátt fyrir áróður þeirra sem eru á móti áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið þá hefur lausung í gjaldmiðlamálum ekki skapað aukna atvinnu samanber myndin. Hún sýnir að atvinnuleysi hefur að jafnaði verið 2,8% í Færeyjum á sama tíma og það hefur verið 4,6% á Íslandi. Áróðursmeistarar hafa haldið hinu gagnstæða fram.

Hæst trónir þó íslenski vaxtaturninn þar sem stýrivextir á Íslandi hafa að meðaltali verið 7% á meðan frændur okkar í Færeyjum lifa við 1,5% vexti. Íslenskir ofbeldisvextir hreinlega öskra á mann og sýna hvað sá hluti neikvæðra kjósenda sem ekki tilheyrir auðvaldinu er þjakaður af þrælslund gagnvart peningavaldinu. Til að þóknast valdinu er sama fólkið tilbúið að fórna betri lífskjörum með því hafna Evrópusambandsaðild. Okurvextirnir eru ekki annað en nútíma þrælahald sem á rætur að rekja til undiroks íslenskra landshöfðingja sem kúguðu leiguliða og annan almúga. Af hverju þrælslundin hverfur ekki hjá þessum hópi er umhugsunarefni.

Framúrskarandi árangur Færeyinga í hagstjórninni er til eftirbreytni og sýnir hvað það er dýrt að elta kreddur um að lausgangandi örmynt sé hjálplegt hagstjórnartæki. Þetta hefur kostað íslensk fyrirtæki og heimili formúu. Villutrú sumra er ekki annað en undirgefni við auðvaldið sem elskar að fjötra almenning. Því sætir það furðu þegar nafntogaðir fulltrúar launafólks hafna áframhaldi á aðildarviðræðum við Evrópusambandið.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: