- Advertisement -

Verðbólgustríð í bæjarráði Kópavogs

Tekist var á um hækkun ýmissa gjalda í bæjarráði Kópavogs:

Jónas Már Torfason Samfylkingu í bæjarráði Kópavogs bókaði:

Í fjölmiðlum hafa fulltrúar meirihlutans lagt áherslu á að gjaldskrár barnafjölskyldna hækki ekki meira en sem nemur 2,5% á ársgrundvelli, í viðleitni til að vinna gegn verðbólgu. Fulltrúi Samfylkingar bendir á að gjaldskrár Kópavogs á barnafólk hafi hækkað gríðarlega á undanförnum misserum og þannig drifið verðbólguþróun áfram. Takmörkun við 2,5% nú er of lítið og of seint.
Eins bendir fulltrúi Samfylkingar á að gjaldskrá skólahljómsveitar hækki töluvert umfram téð 2,5% og skýtur það skökku við þegar áhersla er lögð á lækkun gjaldskrár barna- og fjölskyldufólks. Réttara væri að gjaldskrá skólahljómsveitar væri takmörkuð með sama hætti og leik- og grunnskólagjöld.“

Þessu fylgdi bókun meirihlutans:

„Almennt fylgir gjaldskrá fyrir þjónustu í Kópavogi verðlagi en Kópavogsbær kaus að ganga á undan með góðu fordæmi í viðleitni sinni til að hlífa barnafjölskyldum og stuðla að lægri verðbólgu að takmarka gjaldskrárhækkanir á barnafjölskyldur um 2,5% á árinu.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: