- Advertisement -

Verður Þogerður Katrín sendiherra í Berlín?

Óðinn Viðskiptablaðsins spáir:

„Ósigur ríkisstjórnarinnar í kosningunum á laugardag mun hafa áhrif á stjórnarsam­ starfið og einstaka stjórnarliða. Allt tal odd­vitanna um annað er hreinn og klár leik­ þáttur.

Mest áhrif hefur tapið líklega haft á utanríkisráðherrann, sem var í miklu tilfinningaleguuppnámidaginnfyrirkjördag, þegar útlit var fyrir að Viðreisn yrði undir í því stefnumáli sem var ástæða stofnunar flokksins, og eins á mánudag á Alþingi að loknum fundi utanríkismálanefndar.

Óðinn spáir því að utanríkisráðherra hætti áður en kjörtímabilið er á enda. Svo segir honum hugur að sendiherrastaða sé ekki ólíklegur eftirleikur, til dæmis í Berlín. Það myndi styrkja þetta mikilvægasta sendiráð Íslands gagnvart Evrópusambandinu, því eins og allir sem eitthvað vita vita ráða Þjóðverjar þar mestu.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: